Ferill 472. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1458  —  472. mál.




Svar


félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kærur til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála vegna ákvarðana umboðsmanns skuldara.


     1.      Hversu margar kærur bárust kærunefnd greiðsluaðlögunarmála frá ársbyrjun 2010 til ársloka 2015 vegna ákvarðana umboðsmanns skuldara á grundvelli laga um greiðsluaðlögun, nr. 101/2010? Svar óskast sundurliðað eftir árum, hvaða ákvæðum laganna hin kærða ákvörðun byggðist á og niðurstöðu máls.
    Lög nr. 101/2010 tóku gildi 1. ágúst 2010 og var kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skipuð undir lok þess mánaðar. Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem starfar á grundvelli laga nr. 85/2015, tók við verkefnum úrskurðarnefndar greiðsluaðlögunarmála og fimm annarra úrskurðarnefnda 1. janúar 2016. Í ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 85/2015, um úrskurðarnefnd velferðarmála, var tekið fram að kærunefnd greiðsluaðlögunarmála skyldi ljúka öllum málum sem borist höfðu nefndinni fyrir 1. janúar 2015.
    Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað frá úrskurðarnefnd velferðarmála var fjöldi kæra til kærunefndar greiðsluaðlögunarmála á tímabilinu 2010–2015 eftirfarandi:
     –      Árið 2010 bárust 4 kærur.
     –      Árið 2011 bárust 84 kærur.
     –      Árið 2012 bárust 246 kærur.
     –      Árið 2013 bárust 187 kærur.
     –      Árið 2014 bárust 121 kærur.
     –      Árið 2015 bárust 40 kærur.

     2.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að umboðsmaður skuldara tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Samkvæmt upplýsingum frá úrskurðarnefnd velferðarmála um mál frá kærunefnd greiðsluaðlögunarmála var engu máli vísað frá á á tímabilinu á þeim grundvelli að umboðsmaður skuldara hafi tekið mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar.
    Til frekari upplýsingar um þau mál sem kærunefnd greiðsluaðlögunarmála vísaði frá af öðrum ástæðum á tímabilinu 2010–2015:
     –      Árið 2010 var einu máli vísað frá sem átti ekki undir nefndina.
     –      Árið 2011 var þremur málum vísað frá. Kærufrestur var liðinn í tveimur. Í einu máli var talið að kærandi hefði ekki lögvarða hagsmuni af því að fá niðurstöðu nefndarinnar.
     –      Árið 2012 var 16 málum vísað frá. Kærufrestur var liðinn í 13 málum, engin kæranleg ákvörðun lá fyrir í tveimur og eitt mál átti ekki undir nefndina.
     –      Árið 2013 var sjö málum vísað frá. Kærufrestur var liðinn í 6 málum, engin kæranleg ákvörðun lá fyrir í einu máli.
     –      Árið 2014 var einu máli vísað frá. Kærufrestur liðinn.
     –      Árið 2015 var einu máli vísað frá. Kærufrestur liðinn.
    Til frekari upplýsingar þá kemur fram í þeim upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað frá úrskurðarnefnd velferðarmála um kærunefnd greiðsluaðlögunarmála að á árunum 2010–2015 hafi eftirtalinn fjöldi mála verið afturkallaður af hálfu umboðsmanns skuldara (UMS):
     –      Árið 2011 voru 11 mál afturkölluð. Öll málin voru afturkölluð af UMS þar sem nýjar upplýsingar bárust með kæru.
     –      Árið 2012 voru 15 mál afturkölluð. Öll málin voru afturkölluð af UMS þar sem nýjar upplýsingar bárust með kæru og mál kæranda endurupptekið.
     –      Árið 2013 voru fimm mál afturkölluð. Öll málin voru afturkölluð af UMS þar sem nýjar upplýsingar bárust með kæru og mál kæranda endurupptekið.
     –      Árið 2014 sjö mál afturkölluð. Öll málin voru afturkölluð af UMS þar sem nýjar upplýsingar bárust með kæru og mál kæranda endurupptekið. Árið 2015 var eitt mál afturkallað. Málið var afturkölluð af UMS þar sem nýjar upplýsingar bárust með kæru og mál kæranda endurupptekið.

     3.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Málsmeðferðartími mála sem vísað var frá er ekki inni í upplýsingum um meðalmálsmeðferðartíma samkvæmt þeim gögnum sem ráðuneytið hefur aflað frá úrskurðarnefnd velferðarmála um mál frá kærunefnd greiðsluaðlögunarmála. Meðalmálsmeðferðartími kærumála sem úrskurðað var í á árunum 2010 til 2015 var eftirfarandi:
     –      Enginn úrskurður kveðinn upp á árinu 2010.
     –      Meðalmálsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í 2011 var 5,1 mánuður.
     –      Meðalmálsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í 2012 var 9,8 mánuðir.
     –      Meðalmálsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í 2013 var 15,6 mánuðir.
     –      Meðalmálsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í 2014 var 22,4 mánuðir.
     –      Meðalmálsmeðferðartími mála sem úrskurðað var í 2015 var 24,5 mánuðir.

     4.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Samkvæmt upplýsingum frá úrskurðarnefnd velferðarmála var málsmeðferðartími kærumála hjá kærunefnd greiðsluaðlögunarmála lengri en þrír mánuðir í eftirtöldum fjölda mála:
     –      Í málum sem bárust á árinu 2010 var málsmeðferðartími í einu máli lengri en þrír mánuðir.
     –      Í málum sem bárust á árinu 2011 var málsmeðferðartími í 62 málum lengri en þrír mánuðir.
     –      Í málum sem bárust á árinu 2012 var málsmeðferðartími í 194 málum lengri en þrír mánuðir.
     –      Í málum sem bárust á árinu 2013 var málsmeðferðartími í 140 málum lengri en þrír mánuðir.
     –      Í málum sem bárust á árinu 2014 var málsmeðferðartími í 87 málum lengri en þrír mánuðir.
     –      Í málum sem bárust á árinu 2015 var málsmeðferðartími í 26 málum lengri en þrír mánuðir.

     5.      Hversu oft hefur umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði kærunefndar greiðsluaðlögunarmála hnekkt? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið hefur aflað frá umboðsmanni skuldara hefur embættið aldrei höfðað mál til að fá úrskurði kærunefndar greiðsluaðlögunarmála hnekkt.

     6.      Hversu oft hafa aðrir en umboðsmaður skuldara höfðað dómsmál til að fá úrskurði kærunefndar greiðsluaðlögunarmála hnekkt? Svar óskast sundurliðað eftir árum og aðilum.
    Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um hvort aðrir en umboðsmaður skuldara hafi höfðað dómsmál til að fá úrskurði nefndarinnar hnekkt.