Ferill 427. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1463  —  427. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Líneik Önnu Sævarsdóttur um líkgeymslur.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvaða sveitarfélög eiga líkgeymslur og hver er rekstraraðili þess húsnæðis? Svar óskast sundurliðað.

    Innviðaráðuneytið fór þess á leit við Samband íslenskra sveitarfélaga að sambandið myndi standa að gerð könnunar um hvaða sveitarfélög á landinu eiga líkgeymslur og hvaða aðilar annast rekstur þeirra húsa. Könnunin var send á öll sveitarfélög á landinu og svöruðu alls 48 þeirra.
    Með vísan til framangreindrar fyrirspurnar voru eftirfarandi spurningar lagðar fyrir í könnuninni:
    „Á sveitarfélagið líkgeymslu?“
    „Ef sveitarfélagið á líkgeymslu, hver er rekstraraðili þess húsnæðis?“
    Af þeim 48 sveitarfélögum sem svöruðu könnuninni voru alls níu sem sögðust ýmist eiga líkgeymslu eða að rekstur líkgeymslu væri starfræktur í sveitarfélaginu. Sveitarfélögin eru:
     –      Snæfellsbær
     –      Strandabyggð
     –      Fjallabyggð
     –      Vopnafjarðarhreppur
     –      Svalbarðshreppur
     –      Langanesbyggð
     –      Fjarðabyggð
     –      Sveitarfélagið Hornafjörður
     –      Skeiða- og Gnúpverjahreppur
    Hér á eftir er nánari sundurliðun á því með hvaða hætti staðið er að rekstri líkgeymsla í sveitarfélögunum níu:

Sveitarfélag annast sjálft rekstur líkgeymslu:
Sveitarfélag Rekstraraðili
Langanesbyggð Sveitarfélagið leigir geymslurými í kirkjunni á Þórshöfn sem líkgeymslu.
Fjarðabyggð Fjarðabyggð er rekstraraðili eins líkhúss sem er staðsett á Eskifirði.
Svalbarðshreppur Sveitarfélagið leigir líkgeymslu af Þórshafnarkirkju og kostar rekstur hennar með eigin starfsfólki.

Líkgeymsla er í eigu ríkis/ríkisstofnunar:
Sveitarfélag Rekstraraðili
Vopnafjarðarhreppur Það er líkgeymsla að Kolbeinsgötu 11b í eigu ríkissjóðs Íslands.

Útfararþjónusta annast rekstur líkgeymslu:
Sveitarfélag Rekstraraðili
Skeiða- og Gnúpverjahreppur Það er líkgeymsla í sveitarfélaginu. Hún er ekki í eigu sveitarfélagsins heldur Útfararþjónustu Suðurnesja sem rekur hana einnig.
Strandabyggð Hólmavíkurkirkja er með líkgeymslu/kæli í kirkjunni.
Útfararþjónusta Borgarfjarðar og Stranda leigir líkgeymsluna og nýtir fyrir sitt þjónustusvæði.

Söfnuður/kirkja annast rekstur líkgeymslu:
Sveitarfélag Rekstraraðili
Snæfellsbær Söfnuðir Ólafsvíkur- og Ingjaldshólskirkju.
Snæfellsbær sér um viðhald húsnæðisins.
Sveitarfélagið Hornafjörður Hafnarkirkja á líkgeymslu sem er í kjallara kirkjunnar.
Starfsfólk hjúkrunarheimilis sinnir þjónustu við hinn látna.
Rekstur líkgeymslu er greiddur af söfnuðinum.

Dvalarheimili annast rekstur líkgeymslu:
Sveitarfélag Rekstraraðili
Fjallabyggð Dvalarheimilið Hornbrekka.