Ferill 748. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1469 — 748. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um starfsmannafjölda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu margir voru starfsmenn forsætisráðuneytisins í árslok árin 2009–2021 og hversu margir eru þeir nú?
Við vinnslu svarsins var óskað eftir aðstoð frá Fjársýslunni við að afla upplýsinga um fjölda starfsmanna á tímabilinu úr fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Oracle). Í samræmi við orðalag fyrirspurnarinnar tekur eftirfarandi tafla mið af fjölda starfsmanna í lok árs á tímabilinu, þ.m.t. ráðherra og aðstoðarmanna, en ekki fjölda stöðugilda:
| 31.12.2009 | 35 |
| 31.12.2010 | 42 |
| 31.12.2011 | 41 |
| 31.12.2012 | 49 |
| 31.12.2013 | 48 |
| 31.12.2014 | 51 |
| 31.12.2015 | 53 |
| 31.12.2016 | 55 |
| 31.12.2017 | 59 |
| 31.12.2018 | 62 |
| 31.12.2019 | 55 |
| 31.12.2020 | 57 |
| 31.12.2021 | 52 |
| 1.9.2022 | 54 |