Ferill 750. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1472  —  750. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um lestur grunnskólabarna.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvernig hefur fjöldi grunnskólanemenda sem geta ekki lesið sér til gagns þróast síðastliðinn áratug? Svar óskast flokkað eftir árum og aldri (þar sem gögn liggja fyrir).

    Þau gögn sem lögð eru til grundvallar eru niðurstöður PISA-rannsóknarinnar sem er skammstöfun fyrir Programme for International Student Assessment en það er nafn á umfangsmikilli alþjóðlegri rannsókn sem framkvæmd er á vegum OECD (Efnahags- og framfarastofnunarinnar).
    PISA er helsti alþjóðlegi mælikvarði á gæði og árangur grunnskóla. Mælikvarðinn sýnir hvernig nemendur á Íslandi standa við lok grunnskóla í samanburði við nemendur í öðrum löndum. PISA-kannanir eru endurteknar á þriggja ára fresti og sýna hvort grunnskólinn á Íslandi bæti sig í samanburði við viðmiðunarlöndin. Rannsókninni er ætlað að meta hæfni og getu 15 ára nemenda í lestri, náttúrufræði og stærðfræði. Þegar niðurstöður liggja fyrir leitast rannsakendur við að finna hugsanlegar skýringar á því hvað hafi áhrif á mismunandi frammistöðu þeirra þjóða sem taka þátt í könnuninni.
    Lesskilningsverkefni PISA eru flokkuð á ólík hæfniþrep eftir þyngd og þeirri hæfni sem verkefnin reyna á. Hæfniþrepin eru einnig notuð til að flokka nemendur eftir frammistöðu og veita þannig upplýsingar um það hversu hátt hlutfall nemenda á Íslandi og í öðrum löndum býr yfir ákveðinni hæfni í lesskilningi. Hæfniþrep í lesskilningi í PISA 2018 eru átta; þrep 1c, 1b, 1a, 2, 3, 4, 5 og 6, en flokkarnir níu, því hlutfall nemenda sem eru undir þrepi 1c er einnig tiltekið.
    Lesskilningsverkefni PISA eru flokkuð á ólík hæfniþrep eftir því hversu mikið þau reyna á margvíslega þætti lesskilnings. Þessi hæfniþrep er líka hægt að nota til að flokka nemendur eftir frammistöðu og veita þannig upplýsingar um það hversu hátt hlutfall nemenda á Íslandi og í öðrum löndum býr yfir ákveðnum hæfniviðmiðum í lesskilningi. Grunnhæfni miðar PISA við hæfniþrep 2 og teljast því nemendur á lægri hæfniþrepum ekki búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Nemendur sem falla á hæfniþrep 5 eða hærra (skora 625 stig eða hærra) teljast afburðagóðir í lesskilningi. Sú leið hefur verið valin að telja þá einstaklinga sem ekki ná öðru þrepi á PISA-skalanum nemendur sem ekki geta í raun lesið sér til gagns.
    Ef skoðuð er þróun niðurstöðu síðustu þriggja PISA-rannsókna má sjá að fjöldi íslenskra nemenda undir öðru hæfniþrepi var árið 2009 17%, árið 2015 22% og árið 2018 26%.