Ferill 29. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1475 — 29. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um áhrif hækkunar fasteignamats.
1. Hversu mikið má að óbreyttu ætla að álögur á kaupendur íbúðarhúsnæðis aukist vegna áhrifa hækkunar fasteignamats 2023 á stimpilgjöld?
Fasteignir eru skráðar og metnar til fasteigna- og brunabótamats hjá Þjóðskrá Íslands. Fasteignamatið er uppfært árlega í samræmi við þróun fasteignaverðs. Á vef Þjóðskrár Íslands er tekin saman hækkun fasteignamats og þar er að finna nýtt fasteignamat fyrir árið 2023 auk frekara niðurbrots milli tegunda fasteigna og eftir staðsetningu, landshlutum og sveitarfélögum. Þar kemur jafnframt fram að heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9% milli áranna 2022 og 2023 og þar af hækkar samanlagt mat íbúða á öllu landinu um 23,6%. 1 Stimpilgjöld hækka til samræmis við hækkun fasteignamats þeirra eigna sem ganga munu kaupum og sölum eftir að nýtt fasteignamat tekur gildi. Þar sem hækkunin er misjöfn milli eigna og mikil óvissa er um hvort umfang fasteignaviðskipta haldist svipað á milli ára er ómögulegt að segja til um nákvæma breytingu á innheimtum stimpilgjöldum milli ára. Til einföldunar mætti líta til fyrrnefndrar meðalhækkunar fasteignamats allra íbúða á landinu sem viðmið um áhrifin í fasteignaviðskiptum á næsta ári að jafnaði.
2. Telur ráðherra koma til greina að lækka álagningarhlutfall stimpilgjalda til að mæta hækkun fasteignamats um næstu áramót? Telur ráðherra koma til greina að afnema stimpilgjöld?
Stimpilgjöld fyrir kaupsamninga einstaklinga eru 0,8% en þegar um er að ræða fyrstu kaup einstaklings á íbúðarhúsnæði greiðist hálft stimpilgjald eða 0,4%. Auk þess eru stimpilgjöld ekki greidd við endurfjármögnun lána. Eins og stendur liggja ekki fyrir áform um að lækka eða afnema stimpilgjöld til að mæta hækkun fasteignamats um næstu áramót.
3. Hver verða áhrif hækkunar fasteignamats 2023 á reiknaða eignastöðu einstaklinga sem reiða sig á vaxtabætur og skerðingar vaxtabóta af þeim orsökum? Hversu margir einstaklingar sem hingað til hafa getað fullnýtt hámarksrétt til vaxtabóta verða fyrir skerðingum, hversu margir verða fyrir auknum skerðingum og hversu margir verða fyrir fullum skerðingum vegna eigna og missa þannig allan rétt til vaxtabóta? Hver má að óbreyttu ætla að heildaráhrif þessara breytinga verði fyrir ríkissjóð?
Við útreikning á vaxtabótum er réttur til bótagreiðslna takmarkaður með fernum hætti. Annars vegar eru tvær takmarkanir á því hversu stór hluti vaxtagjalda, sem myndar stofn til útreiknings vaxtabóta, er tekinn með til útreiknings, þar sem vaxtagjöld mega ekki vera hærri en fyrir fram ákveðið hámark út frá hjúskaparstöðu og ekki hærri en 7% af eftirstöðvum skulda. Hins vegar er um að ræða tekju- og eignaviðmið þar sem fyrst er reiknuð lækkun á stofni vaxtabóta vegna tekna og í kjölfarið vegna eigna. Við áætlun á vaxtabótum ársins 2023 er nauðsynlegt að taka tillit til þessara þátta og þróunar þeirra. Út frá því er hægt að einangra áhrif á bótagreiðslurnar miðað við að fasteignir þróist í takt við fasteignamat annars vegar og hins vegar í takt við aðrar eignir. Forsendur um þróun vaxtagjalda, skulda, tekna og eigna annarra en fasteigna taka mið af þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og mat á þróun sömu stærða það sem af er ári. Þessi greining er háð forsendum um undirliggjandi þætti sem erfitt er að sjá fyrir um og ætti því að taka með þeim fyrirvara. Undirliggjandi gögn sem notuð eru til útreiknings eru fengin úr álagningarskrá Skattsins. Í þeirri skrá er ekki gerður greinarmunur á tegundum fasteigna og því þarf að áætla hækkun fasteigna hvers og eins fasteignaeiganda samkvæmt nýju fasteignamati út frá meðalhækkunum niður á sveitarfélög.
Áætlað er að hreinn eignastofn heimilanna verði rúmlega 10% hærri en hann hefði verið ef fasteignir hefðu þróast í takt við aðrar eignir í landinu. Þetta leiðir til þess að vaxtabætur skerðast um 400 m.kr. Samkvæmt framangreindum forsendum myndi framteljendum sem fá óskertar vaxtabætur fækka um 170 vegna áhrifa hærra fasteignamats. Framteljendum sem verða fyrir fullum skerðingum fjölgar um tæplega 2.800. Áætlað er að allt að 90% þeirra sem áður fengu vaxtabætur muni verða fyrir auknum skerðingum, mismiklum eftir því hver staða eignastofns þeirra var árið 2021.
4. Telur ráðherra koma til greina að hækka skerðingarmörk vaxtabóta vegna eigna til að mæta auknum skerðingum sem annars leiðir af mikilli hækkun fasteignamats um næstu áramót, með tilliti til þess að tekjur margra í viðkomandi hópum hafa ekki hækkað umfram almennar vísitöluhækkanir?
Spenna í þjóðarbúinu er mikil á alla mælikvarða og kallar á aðhald á sviði peninga- og ríkisfjármála. Mikilvægt er að armar hagstjórnar rói í sömu átt þar sem eftirgjöf á sviði ríkisfjármála kallar á þeim mun meiri hækkun stýrivaxta til þess að draga úr þenslu og verðbólgu. Í uppsveiflum, rétt eins og niðursveiflum, er mikilvægt að áhrif sjálfvirkra sveiflujafnara ríkisfjármála fái að koma fram eins og frekast er kostur. Í vaxtabótakerfinu kemur sjálfvirk sveiflujöfnun m.a. þannig fram að vegna eignaskerðingarmarka minnka greiðslur samhliða hækkun íbúðaverðs. Hækkun eignaskerðingarmarka myndi draga úr sjálfvirkri sveiflujöfnun kerfisins, þvert á hagstjórnarstefnu stjórnvalda, og myndi eingöngu gagnast íbúðaeigendum, einkum þeim sem hafa orðið eignameiri vegna hækkunar íbúðaverðs. Ekki verður séð að þörf sé á slíkum stuðningi með hliðsjón af því að þrátt fyrir meginstefnu um aðhald í ríkisfjármálum hafa stjórnvöld kynnt sérstakar mótvægisaðgerðir til að draga úr áhrifum verðbólgu á viðkvæma hópa. Þær hafa fyrst og fremst þann tilgang að minnka hættu á efnislegum skorti hjá þeim tekjulægstu og eignaminnstu. Þar má nefna að ákveðið var að greiða sérstakan barnabótaauka í sumar til þeirra sem fá tekjutengdar barnabætur, húsnæðisbætur voru hækkaðar og tekjuviðmiðum þeirra breytt til hagsbóta fyrir leigjendur og lífeyrir aldraðra og öryrkja var verðbættur sérstaklega umfram árlega hækkun í fjárlögum. Þá er einnig ástæða til að benda á það í þessu samhengi að fjárhagsstaða heimilanna hefur almennt styrkst öll síðustu ár, þvert á tekjuhópa, og fjárhagsstaða fólks sem býr í eigin húsnæði hefur styrkst sérstaklega vegna mikillar hækkunar íbúðaverðs. Vanskil íbúðalána eru í lágmarki. Það sama á við um vaxtabyrði sem hlutfall af ráðstöfunartekjum samkvæmt nýjustu tölum þótt breyting gæti orðið þar á næstu misseri. Telja má að hækkun vaxtabóta, sérstaklega með hækkun eignaskerðingarmarka, myndi því ekki aðeins ganga gegn stefnu hagstjórnar heldur einnig því sjónarmiði að beina bótagreiðslum og húsnæðisstuðningi þangað sem hans er þörf.
5. Telur ráðherra koma til greina að gera breytingar á skattkerfinu til að draga úr sjálfvirkri tengingu skatta og opinberra gjalda við gjaldstofna sem eru ekki á valdi kjörinna fulltrúa heldur háðir duttlungum markaðarins?
Eins og stendur eru ekki áform um að gera breytingar á skattkerfinu til að draga úr sjálfvirkri tenging skatta og opinberra gjalda. Að öðru leyti er vísað í umfjöllun í svari við 4. tölul. fyrirspurnarinnar um sjálfvirka sveiflujöfnun ríkisfjármálanna.
1 skra.is/fasteignir/fasteignamat/2023/