Ferill 734. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1477 — 734. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána.
Fjármála- og efnahagsráðuneyti býr ekki yfir upplýsingum til að svara 1.–3. tölul. fyrirspurnarinnar. Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum sem gætu gagnast við að veita svör við þessum töluliðum frá Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn hefur eftirlit með reglum sem bankinn setur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda en nú gilda um þau hámörk reglur nr. 701/2022.
1. Hversu mörgum umsóknum neytenda um fasteignalán hefur verið synjað á þeim grundvelli að greiðslubyrði yrði of há samkvæmt reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda, nr. 1268/2021?
Samkvæmt upplýsingum fjármála- og efnahagsráðuneytis safnar Seðlabanki Íslands ekki gögnum til að hægt sé að gefa svar við þessum tölulið fyrirspurnarinnar.
2. Hversu mörgum umsóknum neytenda um óverðtryggð fasteignalán sem hafa staðist greiðslumat hefur verið synjað á grundvelli umræddra reglna og þeir því neyðst til að taka í staðinn verðtryggð fasteignalán vegna þess að lánveitandi miðaði eingöngu við greiðslubyrði í upphafi lánstíma en ekki heildargreiðslubyrði á lánstímanum? Er eðlilegt að auðveldara sé að taka mun óhagstæðari lán?
Seðlabanki Íslands safnar ekki gögnum til þess að hægt sé að gefa svar við þessum tölulið fyrirspurnarinnar. Vísað er til umfjöllunar um hagstæð lánsform í svari við 5. tölul.
3. Að hvaða marki hafa lánveitendur nýtt undanþáguheimild 5. gr. umræddra reglna til að veita allt að 5% af heildarfjárhæð fasteignalána á hverjum ársfjórðungi til neytenda með greiðslubyrði umfram hámark samkvæmt 3. gr. reglnanna?
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands hefur undanþágan verið vel nýtt, til að mynda voru 4,6% af heildarfjárhæð veittra lána á fyrsta ársfjórðungi 2022 umfram hámarkið skv. 3. gr. reglnanna.
4. Telur ráðherra það samræmast umræddum reglum eða markmiðum þeirra að miða aðeins við greiðslubyrði verðtryggðra lána í upphafi lánstíma en líta um leið fram hjá því að hún verður margfalt hærri á síðari hluta lánstímans? Var tilgangur þeirra reglna sá að draga úr samkeppni milli ólíkra lánategunda á kostnað neytenda?
Mat á því hvort lántaki uppfyllir reglurnar byggist á gögnum úr lánshæfis- og greiðslumati hans. Kom það verklag til þar sem æskilegt var talið að mat samkvæmt reglum um hámark greiðslubyrðar fæli ekki í sér aukna gagnasöfnun eða annað tekjuviðmið en stuðst hafði verið við fram að því að reglurnar tóku gildi. Greiðslumat hefur byggst á tekjum og skuldbindingum lántaka og greiðslubyrði lánsins við upphaf lántöku um langt skeið hér á landi. Ólíklegt er að greiðslumat yfir allan lánstímann, þar sem lánveitandi gæfi sér forsendur um kjör lánsins (svo sem verðbólgu og vexti) og launaþróun lántaka á 40 ára líftíma væri áreiðanlegra en það greiðslumat sem nú er stuðst við.
Til að draga úr óæskilegum hvötum til að velja eitt lánaform umfram annað var reglum um hámark greiðslubyrðar breytt og hafa nýjar reglur, nr. 701/2022, tekið gildi. Í eldri reglum var miðað við að hámarki 40 ára lánstíma fyrir óverðtryggð lán og 30 ára lánstíma fyrir verðtryggð lán, en síðarnefnda viðmiðinu hefur nú verið breytt í 25 ár. Þá voru sett sérstök vaxtaviðmið í 4. gr. reglnanna: „Við útreikning hámarks greiðslubyrðar fasteignalána skv. 3. gr. skal að lágmarki miða við samningsvexti viðkomandi láns eða lána, þó ekki lægri en 5,5% vexti af óverðtryggðum lánum og 3% vexti af verðtryggðum lánum.“
Þessar lágmarkskröfur gera það að verkum að útreiknuð greiðslubyrði samkvæmt reglunum verður sambærileg milli verðtryggðra og óverðtryggðra lána, þegar vextir eru lægri en tilgreint er í 4. gr. reglnanna. Sem dæmi er upphafsgreiðslubyrði verðtryggðs láns miðað við 40 ára lánstíma og 2% vexti um 3.000 kr. fyrir hverja milljón láns. Samkvæmt reglunum þyrfti viðkomandi lántaki að standast reglurnar miðað við 25 ára lánstíma og 3% vexti, eða tæplega 4.800 kr. fyrir hverja milljón láns.
Þá ber að geta þess að þrátt fyrir að greiðslur af verðtryggðum lánum fari hækkandi yfir lánstíma að nafnvirði er verðtrygging ein leið til að jafna raungreiðslubyrði lána yfir tíma. Allar endurgreiðslur verðtryggðs jafngreiðsluláns eru jafnháar að raunvirði og ef laun lántaka breytast í takt við verðbólgu á lánstímanum verður raungreiðslubyrði lánsins stöðug yfir allt tímabilið.
5. Telur ráðherra koma til greina að skerpa á umræddum reglum til að tryggja að miðað sé við heildargreiðslubyrði á lánstímanum við framkvæmd þeirra fremur en greiðslubyrði í upphafi lánstíma til að fyrirbyggja þá hliðarverkun að neytendur taki mun óhagstæðari verðtryggð lán, með tilliti til þess að heildargreiðslubyrði þeirra á lánstímanum verður mun hærri en hliðstæðra óverðtryggðra lána?
Heimild til að setja reglur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána til neytenda byggist á 27. gr. laga um fasteignalán til neytenda, nr. 118/2016. Í því ákvæði er Seðlabanka Íslands veitt heimild til að setja reglurnar að fengnu samþykki fjármálastöðugleikanefndar. Ráðherra á ekki aðkomu að því að setja þessar reglur að öðru leyti en því að fulltrúi ráðuneytisins skal eiga sæti á fundum nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar. Seðlabankinn breytti reglunum í júní 2022 til þess að draga úr óæskilegum áhrifum þeirra á val lántaka á lánsformi. Vísað er til svars við 4. tölul. fyrirspurnarinnar. Þar er jafnframt fjallað um greiðslubyrði verðtryggðra lána. Í þessum tölulið fyrirspurnarinnar er því haldið fram að verðtryggð lán séu mun óhagstæðari en óverðtryggð. Í því samhengi er vísað til töflu 1 hér að aftan úr riti Seðlabankans, Efnahagsmálum, nr. 6, frá því í desember 2013, þar sem sýnt er að meðalverðbólga yfir lánstímann hefur mikil áhrif á það hvort lánsformið er hagstæðara. Þá skal jafnframt á það bent að endurgreiðsluferill verðtryggðra jafngreiðslulána, sem er afturhlaðinn að nafnvirði, veitir mörgum tækifæri til þess að eignast húsnæði sem hefðu ekki tækifæri til þess ef eingöngu væru í boði óverðtryggð lán. Meðal þeirra eru einstaklingar sem hefðu greitt meira í leigu en kostar þá að reka húsnæðið sem þeim er gert kleift að kaupa með verðtryggðu láni. Raunvextir á verðtryggðum lánum eru að jafnaði lægri en á óverðtryggðum lánum sem hefur í för með sér að ef lántaki staðgreiðir verðbætur verðtryggðs láns kann slíkt lán að vera hagstæðara en óverðtryggt. Af því sem að framan greinir má vera ljóst að mat á því hvort óverðtryggt lán sé hagstæðara en verðtryggt fer eftir verðbólgu og vaxtastigi á líftíma láns og aðstæðum hvers lántaka.
| Tafla 1. | |||||||||
| Óverðtryggt lán | Verðtryggt lán | Raunvirði óverðtryggðs láns eftir meðalverðbólgu | |||||||
| Ár | Nafnvirði | Raunvirði | Nafnvirði | Raunvirði | –2% | 2% | 3% | 4% | 8% |
| 10 | 805.980 | ? | 543.431 | ? | 986.424 | 661.184 | 599.725 | 544.491 | 373.325 |
| 20 | 805.980 | ? | 543.431 | ? | 1.207.265 | 542.401 | 446.252 | 367.839 | 172.922 |
| 30 | 805.980 | ? | 543.431 | ? | 1.477.549 | 444.958 | 332.053 | 248.499 | 80.096 |
| 40 | 805.980 | ? | 543.431 | ? | 1.808.345 | 365.021 | 247.079 | 167.877 | 37.100 |
Í töflu 1 er sýnt hvernig raunvirði endurgreiðslna óverðtryggðs láns er háð þróun verðbólgunnar. Sýnd er upphæð árlegra afborgana eftir 10, 20, 30 og 40 ár. Greiðslur óverðtryggða jafngreiðslulánsins eru mun hærri en þess verðtryggða til að byrja með, þar sem hluti vaxtanna á óverðtryggða láninu kemur til vegna væntrar verðbólgu. Í þessu dæmi er ekki reiknað með álagi vegna óvissu um verðbólguþróun. Raunvirði endurgreiðslna óverðtryggða lánsins er ekki þekkt fyrir fram, og er það táknað með spurningarmerki í töflunni. Upphæð endurgreiðslna verðtryggða lánsins er þekkt að raunvirði og breytist ekki þótt verðbólga víki frá upphaflegum forsendum, en nafnvirði þeirra er ekki þekkt fyrir fram. Fimm öftustu dálkarnir í töflunni sýna mismunandi dæmi um þróun endurgreiðslna óverðtryggða lánsins að raunvirði eftir því hver verðbólgan reynist vera að jafnaði á lánstímanum. Dæmið með 3% verðbólgu er það sem lá til grundvallar vöxtunum á láninu, en horft var fram hjá álagi vegna óvissu um verðbólguna.