Ferill 735. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1478  —  735. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur um rafræn skilríki.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvað hefur valdið töfum á því að ríkið hefji útgáfu rafrænna skilríkja sem kom fram í tilkynningu frá ráðuneytinu 2. júlí 2021 að stæði til í byrjun þessa árs?
     2.      Hvenær má búast við því að ríkið hefji útgáfu rafrænna skilríkja og hvaða stofnun er fyrirhugað að fela það verkefni?
     3.      Hvaða vinna stendur yfir til að tryggja aðgengi að rafrænni stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera fyrir einstaklinga sem vegna heilsufars eða af öðrum sambærilegum ástæðum geta ekki notað rafræn skilríki og hver er staða þeirrar vinnu?


    Í 1. tölul. fyrirspurnarinnar er vísað til fréttatilkynningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins frá 2. júlí 2021 þar sem fram kom að ríkið væri að yfirtaka fyrirtækið Auðkenni sem hafi haft með höndum að gefa út rafræn skilríki, þ.e. rafræna auðkenningu. Bankar hafi annast um að virkja rafræna auðkenningu og að stefnt væri að því að ríkið tæki við þjónustunni 1. janúar 2022. Með því var ekki átt við að þá mundi hefjast útgáfa slíkra rafrænna skilríkja til auðkenningar því þau hafa verið fyrir hendi um langt árabil. Vera má að það geti valdið misskilningi þegar notað er hugtakið skilríki frekar en rafræn auðkenning en það er málefni sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið fer með samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, dags. 31. janúar 2022, sbr. h-lið 8. tölul. Mögulega er þó í fyrirspurninni átt við rafræn persónuskilríki, sem dómsmálaráðuneytið fer með samkvæmt forsetaúrskurði, sbr. 25. tölul., en gert er ráð fyrir því í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að á kjörtímabilinu verði unnið að útgáfu á opinberum rafrænum persónuskilríkjum.
    Samkvæmt 2. málsl. 1. mgr. 57. gr. þingskapalaga skal fyrirspurn þingmanns til ráðherra vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á. Hvorug útgáfan á rafrænum skilríkjum eða auðkenningu sem hér er um að ræða er á forræði fjármála- og efnahagsráðuneytisins heldur fer ráðuneytið einungis með félagaforsvarið gagnvart Auðkenni sem fyrirtækis í eigu ríkisins. Er erindi fyrirspurnarinnar því ekki á málefnasviði fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneytið telur því að beina ætti fyrirspurninni til annars ráðherra.
    Í þessu sambandi er þó rétt að láta þess getið að verkefnastofan Stafrænt Ísland, sem er hluti fjármála- og efnahagsráðuneytisins, hefur að undanförnu unnið að þróun stafræns umboðskerfis í samstarfi við félagið Auðkenni og viðkomandi ráðuneyti. Markmið verkefnisins er að tryggja að allir einstaklingar – eða eftir atvikum aðilar með umboð fyrir viðkomandi – geti sótt stafræna þjónustu á vefnum Ísland.is og öðrum opinberum vefsíðum. Stafræna umboðskerfið verður til að mynda með beina tengingu við miðlægan grunn félags- og vinnumarkaðsráðuneytis um persónulega talsmenn fatlaðs fólks samkvæmt reglugerð nr. 972/2012. Nú þegar hefur fyrsti hluti umboðskerfisins verið tekinn í notkun á Ísland.is og gert er ráð fyrir að þróun lausnarinnar ljúki árið 2023.