Ferill 764. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1479  —  764. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um hamfarahlýnun.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Er til skilgreining á hugtakinu hamfarahlýnun? Ef hún er til, hver er hún?

    Fyrirspurn þessari er beint til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra en hefði mögulega átt að beina til Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hér er fyrirspurninni svarað út frá útgefnu efni en ef frekari greining óskast þá er rétt að beina fyrirspurninni í fyrrnefndan farveg til frekari umfjöllunar.
    Orðið hamfarahlýnun hefur verið notað undanfarin ár sem samheiti við loftslagsbreytingar eða hlýnun jarðar. Loftslagsráð fjallaði um notkun þessa hugtaks í skýrslu um aðlögun að loftslagsbreytingum, Að búa sig undir breyttan heim, sem gefin var út í janúar 2020.
    Í skýrslunni segir orðrétt:
    „Í almannaumræðu hefur verið rætt um að nota eigi sterkara orð um loftslagsbreytingar til þess að vekja hughrif sem hæfa alvarleika hlýnunar og hafa ýmis orð borið á góma. Nýyrðið hamfarahlýnun hefur verið notað í bland við loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar sem hafa skipað sér sess í málinu en þykja af mörgum of hlutlaus fyrir jafn alvarlegan vanda. Hugtakið loftslagshamfarir hefur einnig verið notað í almennri umræðu um loftslagsvandann og samhliða því verið kallað eftir að þjóðríki lýsi yfir neyðarástandi vegna stöðunnar í loftslagsmálum. Í stað þess að nota hugtakið loftslagshamfarir yfir loftslagsvandann mætti hugsa sér að nota það til þess að vísa til sérstaklega alvarlegra atburða vegna loftslagsbreytinga sem skapa neyðarástand, eins konar undirflokk náttúruhamfara þar sem orsakatengsl eru milli atburða og hlýnunar jarðar. Hins vegar skal hafa í huga að mun fleiri loftslagstengdir atburðir sem verða munu á Íslandi falla ekki undir skilgreiningu hamfara og því er gagnlegt að eiga hugtök sem vísa til minni atburða, minna tjóns af loftslagsvöldum, t.d. eru flest flóð sem valda tjóni á Íslandi svokölluð amaflóð (e. nuisance flooding) en ekki hamfaraflóð.“
    Í skýrslunni kemur jafnframt fram í orðskýringum undir orðinu loftslagsbreytingar:
    „Loftslagsbreytingar (e. climate change). Breytingar á vistkerfum vegna aukins styrks gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu sem veldur hækkuðu hitastigi á heimsvísu. Yfirstandandi loftslagsbreytingar eru nefndar loftslagsbreytingar af mannavöldum (e. anthropogenic climate change) vegna þess að losun gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum er lykilþáttur í stærðargráðu þeirra. Önnur algeng samheiti eru hlýnun jarðar (e. global warming; global heating), hamfarahlýnun jarðar og algeng stytting þess hugtaks, hamfarahlýnun.“