Ferill 743. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1480  —  743. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um lífeyrisréttindi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hafa lífeyrissjóðir lagaheimild til þess að breyta réttindum lífeyrisþega á mismunandi hátt, eftir aldri til dæmis? Svarið óskast rökstutt.

    Lífeyrissjóðir hafa heimild til að kveða á um mismunandi ávinnslu réttinda sjóðfélaga, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 129/1997: „Í samþykktum lífeyrissjóðs skal kveðið nánar á um ávinnslu réttinda en hún getur verið mismunandi eftir því hvort iðgjald er til lágmarks- eða viðbótartryggingaverndar og eftir atvikum háð eða óháð aldri.“
    Lífeyrissjóðir geta breytt réttindum, og er skylt að gera það í ákveðnum tilvikum. Um þau er fjallað í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 129/1997: „Leiði tryggingafræðileg athugun skv. 24. gr. í ljós að meira en 10% munur er á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga skv. 1. mgr. er hlutaðeigandi lífeyrissjóði skylt að gera nauðsynlegar breytingar á samþykktum sjóðsins. Sama gildir ef munur samkvæmt tryggingafræðilegum athugunum á milli eignarliða og lífeyrisskuldbindinga hefur haldist meiri en 5% samfellt í fimm ár.“
    Í sjóðum án bakábyrgðar launagreiðanda leiðir neikvæð niðurstaða tryggingafræðilegrar úttektar umfram mörk 2. mgr. 39. gr. til hærri iðgjalda eða skerðingar réttinda þar sem slíkir sjóðir geta ekki tryggt lífeyri umfram eignir. Hærri iðgjöld og skert réttindi eiga það sameiginlegt að færa eignir og skuldir nær hvoru öðru. Með frumvarpi því sem varð að lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997 segir um þetta í almennum athugasemdum:
    „Í 39. gr. frumvarpsins er kveðið á um það með afdráttarlausum hætti að jafnvægi eigi að vera milli eigna og skuldbindinga lífeyrissjóða. Komi í ljós við tryggingafræðilega athugun að munur á eignum og skuldbindingum er yfir 10% eða meiri en 5% samfellt í fimm ár ber lífeyrissjóði að grípa til viðeigandi ráðstafana. Geta þær ráðstafanir leitt annars vegar til skerðingar á lífeyrisréttindum og hækkunar iðgjalds eða hins vegar til aukningar á lífeyrisréttindum og lækkunar iðgjalds, allt eftir því hvað segir í samþykktum og hvernig sjóðurinn stendur.“
    Lög nr. 129/1997 tiltaka ekki hvort eingöngu eigi að breyta framtíðarréttindum til þess að rétta af innbyrðis stöðu eigna og skulda eða hvort einnig sé heimilt að breyta þegar áunnum réttindum. Viðbrögð margra sjóða við fjármálahruninu 2008 voru að draga úr réttindum allra, þ.m.t. þeirra sem þegar voru komnir á lífeyri. Hæstiréttur hefur í úrlausnum sínum komist að þeirri niðurstöðu að áunnin lífeyrisréttindi launþega samkvæmt lögum njóti verndar eignarréttarákvæða stjórnarskrárinnar og verði ekki af þeim tekin nema með skýlausri lagaheimild. Hæstiréttur hefur talið heimildir löggjafans til skerðingar lífeyrisréttinda sem eru orðin virk þrengri heldur en þeirra, sem eru væntanleg, þegar skerðingin tekur gildi. Þá má sjá af dómum Hæstaréttar að hann hefur talið að breyting á réttindum sjóðfélaga í samtryggingasjóði skuli vera eins fyrir alla sjóðfélaga sem eins stendur á um, sjá t.d. dóm í máli nr. 249/2000.