Ferill 688. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1481  —  688. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um kostnað og framlög vegna dreifnáms.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvert hefur framlag sveitarfélaga verið til dreifnámsdeilda í framhaldsskólum undanfarin tíu ár og hvaða framlög hafa komið á móti frá ríkinu á sama tíma, sundurliðað eftir árum, dreifnámsdeildum og sveitarfélögum?

    Á undanförnum áratugum hafa nokkrir framhaldsskólar óskað eftir því við mennta- og barnamálaráðuneytið að vera með útibú í öðru sveitarfélagi en skólinn er í. Samningar hafa verið gerðir á milli viðkomandi framhaldsskóla og sveitarfélaga að frumkvæði sveitarfélaganna og þá með það að markmiði að bjóða upp á framhaldsskólanám fyrir nemendur í heimabyggð í 1–2 ár. Í samningunum er kveðið á um skiptingu kostnaðar á milli skóla og sveitarfélags. Samningarnir eru mismunandi hvað varðar t.d. húsnæðiskostnað, þrif á húsnæði og annan rekstrarkostnað.
    Árið 2022 eru starfrækt sex útibú frá þremur mismunandi framhaldsskólum (stofnár).
    Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er með þrjú útibú: Blönduósi (2013), Hvammstanga (2012) og Hólmavík (2013).
    Framhaldsskólinn á Laugum er með tvö útibú: Þórshöfn (2009) og Vopnafirði (2016).
    Fjölbrautaskóli Snæfellinga er með eitt útibú: Patreksfirði (2007).
    Jafnframt var stofnuð framhaldsdeild í Búðardal frá Menntaskólanum í Borgarnesi árið 2013 en sú framhaldsdeild var einungis starfrækt í fáein ár.
    Framhaldsskóladeildir eru samkvæmt fjárlögum sama rekstrareining og skólinn sem óskar eftir að reka þær og lúta þannig sömu reglum um fjárveitingar og annað framhaldsskólahald, þ.e. fjárframlög ráðast af nemendafjölda, tegund náms og fleira. Framhaldsskólar sem eru með framhaldsskóladeildir hafa fengið aukaframlag vegna stjórnunar og umsýslu. Þetta framlag hækkar samkvæmt kjara og verðlagsbótum.
    Árlegt aukaframlag til þessara skóla árið 2022 er:
    Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, um 24 m.kr.
    Framhaldsskólinn á Laugum, um 26 m.kr.
    Fjölbrautaskóli Snæfellinga, um 4 m.kr. en hækkar í 10 m.kr. í fjárlögum 2023.
    Ráðuneytið hefur ekki yfirsýn yfir heildargreiðslur til framhaldsskóladeilda síðastliðin 10 ár þar sem hluti fjármagnsins var greiddur samkvæmt heildarnemendafjölda viðkomandi framhaldsskóla. Jafnframt hefur ráðuneytið ekki upplýsingar um kostnað viðkomandi sveitarfélaga varðandi rekstur framhaldsskóladeilda. Heildarviðbótarstyrkveiting vegna framhaldsskóladeilda hefur á verðlagi 2022 verið um 495 m.kr. frá árinu 2012.
    Reglulegt mat á áhrifum þessara stuðningsaðgerða hefur ekki farið fram af hálfu ráðuneytisins. Ráðuneytið hyggst gera úttekt á framkvæmd og rekstri framhaldsskóladeilda á landsbyggðinni.