Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 1483 — 396. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Kolbrúnu Baldursdóttur um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur ráðherra íhugað að breyta reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, og endurskilgreina einelti í samræmi við eldri reglugerð, nr. 100/2004, þannig að ekki sé ófrávíkjanlegt skilyrði að hegðunin sé síendurtekin? Ef svo er, hvenær er breytingarinnar að vænta? Hver er afstaða ráðherra til þessa máls?
Í vinnu við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, var áhersla lögð á víðtæka samvinnu og aðkomu sem flestra. Reglugerðin var unnin í samráði við aðila vinnumarkaðarins en í nefndinni sem vann að reglugerðinni áttu sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Jafnréttisstofu, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Vinnueftirliti ríkisins.
Skilgreiningin á eineltishugtakinu var mikið rædd í nefndinni og voru fulltrúar í henni sammála um mikilvægi þess að gera skýran greinarmun á samskiptavanda og einelti. Í tíð eldri reglugerðar um aðgerðir gegn einelti á vinnustað, nr. 1000/2004, var ekki gerð sú krafa að háttsemi hefði átt sér stað oftar en einu sinni til að um einelti gæti verið að ræða en samkvæmt skilgreiningunni var nægjanlegt að háttsemi væri ámælisverð til að hún gæti talist einelti á vinnustað.
Það var niðurstaða framangreindrar nefndar að ekki væri nóg að háttsemi teldist ámælisverð til að um einelti gæti verið að ræða og að hegðun þyrfti að vera síendurtekin til að geta verið skilgreind sem einelti. Þótti sá skilningur á hugtakinu „einelti“ í samræmi við almenna orðanotkun og alþjóðlegar skilgreiningar.
Þá er bent á að þrátt fyrir að háttsemi sem lýst er í kvörtun starfsmanns falli ekki undir skilgreiningu á einelti samkvæmt reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, þar sem hegðunin hefur ekki verið síendurtekin er sú skylda engu að síður lögð á atvinnurekanda samkvæmt reglugerðinni að bregðast við hugsanlegum samskiptavanda á vinnustað.
Í vinnu við reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, var áhersla lögð á víðtæka samvinnu og aðkomu sem flestra og var reglugerðin unnin í samráði við aðila vinnumarkaðarins. Félags- og vinnumarkaðsráðherra þykir ástæða að taka til skoðunar skilgreininguna á hugtakinu „einelti“ í framangreindri reglugerð auk þess sem taka þurfi til skoðunar skilgreiningar á fleiri hugtökum í reglugerðinni í ljósi laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020. Gert er ráð fyrir að hefja þá vinnu við fyrsta tækifæri þar sem m.a. yrði litið til sambærilegra reglna annars staðar á Norðurlöndum.