Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 25  —  25. mál.
Flutningsmaður.




Tillaga til þingsályktunar


um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf.


Flm.: Jóhann Friðrik Friðriksson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Þórarinn Ingi Pétursson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ingibjörg Isaksen, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðbrandur Einarsson, Eyjólfur Ármannsson, Ásmundur Friðriksson, Gísli Rafn Ólafsson.


    Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að klára vinnu við að festa í sessi lýðheilsumat hér á landi. Sérfræðihópur verði skipaður með þátttöku fagráðuneyta, fræðasamfélags og Embættis landlæknis er leggi til leiðir sem tryggja rýni allra stjórnarfrumvarpa sem lögð eru fyrir Alþingi út frá áhrifum þeirra á heilsu þjóðarinnar. Hópurinn skal skila stöðuskýrslu sem kynnt verði Alþingi eigi síðar en 1. maí 2023.

Greinargerð.

    Flutningsmenn leggja hér til að klárað verði að festa í sessi lýðheilsumat hér á landi og gera þannig lýðheilsu að föstum hluta stjórnsýslunnar. Lýðheilsumat er í senn áhrifarík og einföld aðgerð þar sem hægt er að leggja mat á bein og óbein áhrif stjórnsýsluákvarðana og lagasetningar á lýðheilsu. Lífslíkur landsmanna hafa aukist verulega á síðustu áratugum og er aldurssamsetning þjóðarinnar að taka breytingum. Þannig gerir mannfjöldaspá Hagstofunnar (desember 2020) ráð fyrir að 65 ára og eldri verði 20% mannfjöldans árið 2037 og yfir 25% árið 2064. Þetta þýðir að sífellt færri verða á vinnufærum aldri á bak við hvern 65 ára og eldri. Samhliða eykst byrði langvinnra sjúkdóma og ýmsar áskoranir eru fyrirliggjandi, m.a. vegna loftslagsbreytinga. Ef ekki er brugðist við þessari stöðu með markvissum hætti er ljóst að áhrif á kostnað og þjónustuþörf í heilbrigðiskerfinu sem og öðrum kerfum mun aukast verulega og áhrif heilsuleysis leiða af sér verulega neikvæð áhrif á samfélagið í heild. Flutningsmenn telja því mikilvægt að innleiða lýðheilsumat til þess að bregðast við þeim áskorunum sem samfélagið stendur frammi fyrir vegna þessa.
    Heilsu má greina niður í líkamlega, andlega og félagslega vellíðan. Einn megintilgangur stjórnvalda er að tryggja velsæld landsmanna m.a. út frá framangreindum þáttum. Stjórnvöld vinna að því markmiði með öllum þeim kerfum sem einkenna velferðarríki. Skipta má áhrifum á heilsu niður í fimm meginþætti og greinast þeir frá víðum áhrifum niður í sértæk áhrif: 1) áhrif löggjafar af hálfu stjórnvalda, 2) áhrif samfélagsins, 3) áhrif stofnana, 4) áhrif ýmissa hópa í samfélaginu og 5) persónulega þætti sem telja má til sértækra áhrifa. Út frá arðsemi og fyrirbyggjandi sannreyndum aðgerðum skilar löggjöf mestum heilsufarslegum ábata fyrir heildina. Út frá þeim rökum er afar mikilvægt að íslensk stjórnvöld meti áhrif löggjafar á heilsu á sama hátt og áhrif löggjafar eru metin t.d. út frá jafnréttissjónarmiðum, umhverfisáhrifum, kostnaði og fleiri þáttum sem teljast áhersluatriði í íslensku samfélagi. Í þessu samhengi er sérstaklega vert að nefna umhverfismat en því ferli hefur verið settur skýr rammi með lögum. Tvær mismunandi leiðir eru farnar varðandi mat á áhrifum löggjafar sem nefndar eru hér að framan. Varðandi jafnréttissjónarmið hefur ríkisstjórn tekið þá ákvörðun að öll stjórnarfrumvörp skuli meta út frá áhrifum þeirra á jafnrétti kynjanna. Hins vegar liggur fyrir viðamikill lagarammi er snýr að umhverfismati og ljóst að löggjafinn telur mikilvægt að tryggja skýrt ferli varðandi þá greiningu, m.a. með þar til bærri stofnun, Umhverfisstofnun. Ekki er sérstaklega lagt til hér hvernig ákjósanlegast sé að tryggja lýðheilsumat stjórnvalda hér á landi en nærtækast er að horfa til löggjafar og framkvæmdar í Finnlandi þar sem lagafrumvörp eru sérstaklega metin út frá áhrifum þeirra á lýðheilsu.
    Lýðheilsa er þverfagleg enda tengjast nær allir helstu málaflokkar í daglegu lífi fólks heilsufarslegri útkomu þess. Í lýðheilsustefnu til 2030 er sérstaklega tekið fram að stjórnvöldum beri að hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun í heilbrigðismálum, félagsmálum, menntamálum, skipulags- og samgöngumálum, umhverfismálum, málum sem tengjast nýsköpun og vísindarannsóknum og skatta- og efnahagsmálum. Þá þurfi löggjöf að vera skýr og kveða afdráttarlaust á um hlutverk heilbrigðisstofnana, sveitarfélaga og annarra sem sinna lýðheilsustarfi. Þá segir að markmið lýðheilsustarfs þurfi að vera öllum ljós og upplýsingar um árangur þess aðgengilegar almenningi. Tilgangurinn er að skýra hlutverk og vinnu að bættri stjórnun og samhæfingu í lýðheilsustarfi.
    Í ljósi þess að rannsóknir sýna að áhrif löggjafar á heilsu vega hve þyngst skiptir sköpum að tryggja kjörnum fulltrúum og almenningi bestu mögulegu upplýsingar um áhrif laga og reglugerða sem kunna að hafa áhrif á heilsu og heilsutengd lífsgæði. Um langt skeið hefur Embætti landlæknis og einnig Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ásamt Sameinuðu þjóðunum hvatt til innleiðingar á lýðheilsumati. Grundvöllur þess er fyrst og fremst aukið upplýsingagildi sem aftur skilar sér í betri ákvarðanatöku stjórnvalda. Framkvæmd lýðheilsumats er byggt á sannreyndum aðferðum og liggur til grundvallar fjöldi fræðigreina og leiða er tryggja vandaða úttekt. Embætti landlæknis býr nú þegar yfir mikilli þekkingu á sviði lýðheilsu og forvarna og því einsýnt að stofnunin komi að útfærslu á lýðheilsumati er snýr að löggjöf hér á landi.
    Ef marka má umræðu og aðgerðir stjórnvalda á undanförnum árum má ætla að breið samstaða sé um að Ísland taki Finnland sér til fyrirmyndar og innleiði lýðheilsumat. Í ár hefur Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra einnig lagt mikla áherslu á málaflokkinn og helgað Heilbrigðisþingi 2022 lýðheilsu, heilsueflingu, forvörnum og heilsulæsi. Í drögum að aðgerðaáætlun um lýðheilsustefnu sem kynnt var á þinginu var innleiðing á lýðheilsumati ein af aðaláherslunum. Heilsa okkar er það dýrmætasta sem við eigum. Í tengslum við þróun á velsældarmælikvörðum var gerð könnun meðal landsmanna á því hvaða þáttur væri mikilvægastur fyrir lífsgæði og kom skýrt fram að landsmenn mátu heilsuna þar langmikilvægasta þáttinn.
    Tillaga þessi um innleiðingu lýðheilsumats er auk þess í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um aukna áherslu á lýðheilsu, forvarnir og geðheilbrigðismál. Með þingsályktunartillögu þessari er leitast við að tryggja faglega og gerlega útfærslu á lýðheilsumati hér á landi sem þátt í vegferð okkar í átt að bættri heilsu og vellíðan landsmanna og komandi kynslóða.