Ferill 43. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 43  —  43. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um skjaldarmerki frá 1881 á framhlið Alþingishússins.


Flm.: Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Óli Björn Kárason.


    Alþingi ályktar að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að setja upp að nýju skjaldarmerki sem prýddu framhlið Alþingishússins á vígsludegi þess 1. júlí 1881.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var áður lögð fram á 152. löggjafarþingi (502. mál). Með tillögunni er lagt til að skjaldarmerkin sem prýddu Alþingishúsið allt þar til þau voru fjarlægð 1904 verði sett upp að nýju. Um er að ræða tvö skjaldarmerki, annars vegar skjaldarmerki handhafa valds á Íslandi frá fyrri öldum, krýndur útflattur þorskur á rauðum skildi, hins vegar skjaldarmerki Danmerkur, þrjú krýnd ljón. Markmiðið með tillögunni er að færa framhlið hússins í upprunalegt horf og halda í heiðri eigin sögu, sem mikilvægt er og skylt að varðveita.
    Endurbætur á Alþingishúsinu á umliðnum árum hafa miðast að því að húsið sé sem næst í upphaflegu horfi frá því það var reist 1881. Þessi tillaga miðar að sama marki. Komandi kynslóðir eiga rétt á því að þekkja söguna og þau mannvirki og kennileiti sem bera henni vitni, þar á meðal Alþingishúsið í upphaflegri mynd. Á meðfylgjandi teikningu af Alþingishúsinu má sjá umrædd skjaldarmerki.

    

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.