Ferill 108. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 108  —  108. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum.


Flm.: Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram lagafrumvarp fyrir árslok 2023 sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Frumvarpið feli m.a. í sér ákvæði sem tryggi að:
     a.      sjóðfélagar fari með æðsta vald í málefnum lífeyrissjóða með því m.a. að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum sjóðfélaga eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna,
     b.      stjórnir lífeyrissjóða séu kosnar ár hvert á ársfundi sjóðs,
     c.      stjórnarmenn og framkvæmdastjórar í lífeyrissjóðum megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða í þeim fyrirtækjum sem sjá um fjárfestingar fyrir hönd lífeyrissjóðs,
     d.      Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands haldi skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða,
     e.      Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi eftirlit með því hvort hagsmunir stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða samrýmist þeim reglum sem gilda um störf þeirra.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var áður flutt á 149., 150., 151. og 152. löggjafarþingi (49. mál) en náði ekki fram að ganga. Hún er nú lögð fram að nýju óbreytt.
    Með tillögu þessari er lagt til að Alþingi álykti að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga sem hafi það að markmiði að auka lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. Lagt er til að frumvarpið feli í sér skýr ákvæði sem tryggi sjóðfélögum aukið vald í málefnum lífeyrissjóðanna, að stjórnir þeirra séu með skýrt umboð sjóðfélaga, að ekki séu líkur á hagsmunaárekstrum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra við hagsmuni lífeyrissjóðanna og sjóðfélaga og aukið eftirlit með hagsmunaskráningu til að koma í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra.
    Eftir kjarasamningana vorið 1969 hafa stjórnir lífeyrissjóðanna almennt verið skipaðar til helminga af Samtökum atvinnulífsins fyrir hönd launagreiðenda og af viðkomandi stéttarfélagi, en án aðkomu hins almenna sjóðfélaga sem er þó ásamt launagreiðanda skyldaður til að greiða í „lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps“. Launagreiðendur hafa ávallt tilnefnt fulltrúa til setu í stjórnum lífeyrissjóða og á það sér sögulegar skýringar og grundvallaðist í upphafi á húsbóndaábyrgðinni. Mikil breyting hefur orðið á húsbóndaábyrgðinni og framfærsluskyldu almennt. Framfærsluskyldan er að mestu komin til opinberra aðila og hvílir meginþunginn á sveitarfélögunum en nokkur hluti er hjá ríkinu. Fáum dettur í hug að launagreiðandi hafi skyldu til að framfæra fyrrverandi starfsmenn, hvort sem þeir hafa hætt störfum sökum aldurs eða vegna örorku. Þannig hefur hin forna húsbóndaábyrgð flust til Tryggingastofnunar ríkisins, skattkerfisins (barna- og vaxtabætur), lífeyrissjóða, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem greiðir húsnæðisbætur og félagsþjónustu sveitarfélaga. Því er ekki lengur sama ástæða fyrir því að launagreiðendur eigi sæti í stjórn lífeyrissjóða. Þá hafa sjóðfélagar mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta og því þykir flutningsmönnum rétt og eðlilegt að sjóðfélagar fái að taka beinan þátt í starfsemi og stefnumótun lífeyrissjóða með þátttöku og kosningarrétti á ársfundum sjóðanna. Það hefur sýnt sig í umræðu síðustu ára að almenningur er ekki ánægður með ríkjandi kerfi þar sem honum er jafnan ekki tryggð aðkoma að rekstri lífeyrissjóða sem hann er þó skuldbundinn samkvæmt lögum til að greiða í. Mikilvægt er því að færa valdið aftur til sjóðfélaga og setja um það skýrar reglur. Er því lagt til að í frumvarpi því sem lagt verði fyrir Alþingi verði m.a. kveðið á um að stjórn lífeyrissjóða boði til félagsfunda í samræmi við samþykktir sjóðanna og atkvæðisréttur sjóðfélaga á félagsfundi fari eftir áunnum og framreiknuðum iðgjöldum þeirra eftir nánari ákvæðum í samþykktum sjóðanna. Eðlilegt er þó að sjóðfélagi geti veitt öðrum skriflegt umboð til að fara með atkvæði sitt á félagsfundum. Þá telja flutningsmenn rétt að lögfesta ákvæði sem tryggi að kosning stjórnar sé tekin fyrir á hverju ári.
    Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra með skýrari reglum um að stjórnarmenn megi ekki eiga eignarhlut eða stunda viðskipti fyrir eigin reikning í fyrirtækjum sem lífeyrissjóðurinn á hlut í eða stundar viðskipti við. Jafnframt þarf að tryggja að opinbert eftirlit sé með hagsmunum stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða svo að grípa megi til aðgerða ef kemur til hagsmunaárekstra. Því er lagt til að í frumvarpinu verði Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands falið að halda skrá um fjárhagslega hagsmuni og trúnaðarstörf stjórnarmanna og framkvæmdastjóra lífeyrissjóða og jafnframt að hafa eftirlit með því að þeir hagsmunir og þau trúnaðarstörf valdi ekki árekstrum gagnvart hagsmunum lífeyrissjóðs og sjóðfélaga.