Ferill 154. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 155  —  154. mál.




Beiðni um skýrslu


frá forsætisráðherra um hvað fátækt kostar samfélagið.

Frá Halldóru Mogensen, Andrési Inga Jónssyni, Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Birni Leví Gunnarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Gísla Rafni Ólafssyni, Guðbrandi Einarssyni, Guðmundi Inga Kristinssyni, Ingu Sæland, Jakobi Frímanni Magnússyni, Tómasi A. Tómassyni og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.


    Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að ráðherra flytji Alþingi skýrslu um hvað fátækt kostar samfélagið þar sem tekið verði tillit til áætlaðs afleidds kostnaðar sem fellur til vegna fátæktar, þ.e. kostnaðar sem fellur á heilbrigðisþjónustuna, félagslega þjónustu ríkis- og sveitarfélaga, lögreglu, dómskerfið og fangelsis- og menntakerfið o.fl. Í skýrslunni verði fjallað um áætlaðan samfélagslegan kostnað fátæktar hvað varðar opinbera aðila á borð við ríki og sveitarfélög en einnig fjallað um almennan samfélagslegan kostnað sem fellur ekki með beinum hætti á ríkið heldur á einstaklinga, heimili og fyrirtæki.

Greinargerð.

    Fátækt er eitt alvarlegasta mein sem samfélagið þarf að fást við. Fátækt á Íslandi er útbreidd og hefur stjórnvöldum gengið illa að uppræta hana. Fátækt er samfélagslega dýr því hún dregur úr getu fólks til að taka fullan þátt í samfélaginu og að raungera sína eigin möguleika. Það liggur fyrir að samfélagslegur kostnaður af fátækt er mikill og að hann leggst á aðra samfélagslega þjónustu eins og heilbrigðisþjónustuna, réttarkerfið, menntakerfið og sveitarfélög. Hann kemur þannig sjaldnast fram í þeim hluta ríkisrekstrar sem einmitt snýr að því að tryggja framfærslu þeirra sem búa við fátækt. Það er því rétt að við alla ákvarðanatöku um opinber félagsleg kerfi verði tekið mið af heildarkostnaðinum við slík kerfi – ekki bara krónutölunni sem fari í framfærsluna heldur allri þeirri fjárhæð sem til kemur vegna þessa.
    Samkvæmt tölum frá Hagstofunni eru fjölmörg heimili hér á landi sem eiga erfitt með að ná endum saman. Árið 2021 átti það við um 51,5% heimila einstæðra foreldra með eitt eða fleiri börn, 27,6% heimila með börn, 29,2% heimila þeirra sem voru einir í heimili, en lægst 16,1% fyrir heimili þar sem voru fleiri en einn fullorðinn án barna. Þessi hlutföll jukust gríðarlega eftir efnahagshrunið 2008 og eru fyrst nú að verða sambærileg hlutföllunum fyrir hrun. 1
    Líf fátækra einkennist af miklu álagi, vanlíðan og niðurlægingu sem svo grefur undan andlegri og líkamlegri heilsu þeirra. Fátækt foreldra getur einnig haft langvarandi áhrif á börn, og þar eð þroskaskeið barna á fyrstu árunum leggur grunninn að heilsu og þroska þeirra til framtíðar er afar mikilvægt að við tryggjum öllum börnum þá bestu mögulegu byrjun í lífinu sem kostur er á. Rannsóknir undanfarinna ára benda til þess að þúsundum barna á Íslandi hafi verið gert að lifa við fátækt. Árið 2021 voru 10,4% heimila með börn undir lágtekjuhlutfalli, en um var að ræða aukningu frá árinu áður þegar hlutfallið var 9,8%.
    Árið 2021 gáfu Barnaheill – Save the Children út skýrslu um fátækt barna, þar sem bent var á að á Íslandi væri hvorki til skilgreining á fátækt meðal barna né opinber stefna eða áætlun um að uppræta fátækt á meðal barna. Þá var Ísland enn fremur eina þátttökulandið sem hafði enga skilgreiningu á fátækt meðal barna. Þeir hópar barnafjölskyldna á Íslandi sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir fátækt og félagslegri einangrun samkvæmt skýrslunni eru einstæðir foreldrar, fjölskyldur með lágar tekjur, fjölskyldur með fötluð börn, fjölskyldur þar sem foreldri er á örorkubótum, flóttabörn og börn í fjölskyldum sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Einna alvarlegast er ástandið hjá foreldrum á örorkubótum, en 90% foreldra segja bæturnar ófullnægjandi, 80% geta ekki mætt óvæntum útgjöldum, 22% segjast ekki geta greitt skólamat fyrir börn sín og 19% geta ekki greitt fyrir frístund eða tómstundir barna sinna. Við þessa erfiðleika blandast svo þröng og versnandi staða á húsnæðismarkaði þar sem leigu- og íbúðaverð hækkar stöðugt. 2
    Fátækt á Íslandi er að miklu leyti afleiðing íslenskrar velferðarstefnu sem byggist á skilyrtri velferðarforsjá í formi lágmarksaðstoðar og áherslu á góðgerðarstarfsemi og ölmusu fyrir þá verst settu. Í gegnum árin hafa verið sett lög og reglugerðir sem veita fólki svo lága framfærslu að upphæðirnar eru innan fátæktarmarka. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á lífi og aðstæðum fátækra sýna mjög greinilega hversu alvarlegar afleiðingar fátækt hefur fyrir samfélagið í heild. Fátækt stuðlar að því að einstaklingar, þar á meðal börn, heltist úr samfélagslestinni, glati samkeppnisfærni og njóti þar af leiðandi ekki þeirra tækifæra og gæða sem teljast sjálfsögð og eðlileg í samfélaginu. Niðurstöður sýna að börn sem fædd eru inn í fátæktaraðstæður eiga í verulegri hættu á að fara út í lífið með brotna sjálfsmynd og upplifa sig sem annars flokks þegna. Fátækt eykur líka hættu á félagslegri einangrun með alvarlegum afleiðingum fyrir einstaklinginn og er þannig líklegri til að ýta undir frekari jaðarsetningu þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð samfélagsins að halda.
    Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, en fyrsta markmið þeirra er að útrýma fátækt í allri sinni mynd alls staðar. Helstu áskoranir sem íslensk stjórnvöld hafa skilgreint í því sambandi er að styrkja stöðu fólks sem stendur höllum fæti, með sérstakri áherslu á börn og að útrýma launamun, m.a. á grundvelli þjóðernisuppruna. Stjórnvöld meta árangur sinn almennt ágætan. Af undirmarkmiðunum fimm telja þau vera „eitthvað í land“ varðandi tvö þeirra, að Ísland sé „vel staðsett“ varðandi tvö þeirra og að markmiði sé náð varðandi eitt þeirra. Greiningar á árangri Íslands byggjast aðallega á tölfræði Hagstofunnar, en sé hún skoðuð er í mörgum tilfellum ekki að merkja neina afgerandi þróun undanfarin ár þegar kemur að markmiði um að útrýma fátækt. Greiningar stjórnvalda á árangri í átt að heimsmarkmiðum byggjast á tölum frá árinu 2018, en séu bráðabirgðatölur Hagstofunnar skoðaðar fyrir árin 2019–2021 má sjá að lágtekjuhlutfall er að meðaltali 8,9%. Síðan árið 2012 hefur lágtekjuhlutfallið flökt allt frá 7,9% upp í 10,3%. Það er því ekki að merkja neinn verulegan árangur í baráttunni fyrir því að uppræta fátækt sé litið til þeirra mælikvarða sem stjórnvöld nota sjálf.
    Til að ná markmiðinu um að uppræta fátækt verða að liggja fyrir betri greiningar á ástandinu í dag, og allar aðgerðir stjórnvalda verða að taka mið af þeim. Hér á landi hefur aldrei verið framkvæmd könnun á því hver samfélagslegur kostnaður sé við að halda fólki og fjölskyldum í fátækt. Eins er ekki þekkt hver mögulegur ávinningur væri af því að útrýma fátækt með markvissum aðgerðum sem væri beint að þessum hópi. Með skýrslubeiðni þessari er forsætisráðherra falið að rannsaka þann kostnað sem fellur til vegna fátæktar, m.a. kostnaðar sem fellur á heilbrigðisþjónustuna, félagslega þjónustu ríkis og sveitarfélaga, lögreglu, dóms-, fangelsis- og menntakerfið. Í skýrslunni verði fjallað um þá áætluðu fjárhæð sem fátækt kostar, bæði hvað varðar opinbera aðila á borð við ríki og sveitarfélög en einnig almennan samfélagslegan kostnað sem fellur ekki með beinum hætti á ríkið heldur á einstaklinga, heimili og fyrirtæki. Þar sem slíkur kostnaður fellur á mörg málefnasvið, og ábyrgð á þeim heyrir undir marga ráðherra samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, er beiðninni beint að forsætisráðherra sem ber ábyrgð á forystu og samhæfingu innan Stjórnarráðs Íslands, og eru velsældaráherslur meðal sérstakra áherslumála forsætisráðuneytisins á sviði samhæfingar samkvæmt forsetaúrskurðinum.
1     hagstofa.is/talnaefni/samfelag/lifskjor/fjarhagsstada-heimila/
2     www.barnaheill.is/is/um-okkur/frettir/uppraetum-fataekt-og-tryggjum-rett-allra-barna-til-velferdar-og-thatttoku-i-i-samfelaginu