Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 207 — 206. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um stöðu kvenna í fangelsum.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
1. Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að bæta stöðu kvenna í fangelsum landsins í kjölfar nýrrar skýrslu umboðsmanns Alþingis þar sem fram kemur að eina opna úrræðið fyrir konur sé á Sogni?
2. Tekur ráðherra undir það mat umboðsmanns Alþingis að það halli á konur innan fangelsismálakerfisins að þessu leyti?
3. Hversu margar konur voru í afplánun á því tímabili sem skoðun umboðsmanns tók til?
4. Hversu margar konur eru á biðlista eftir afplánun í fangelsi?
5. Hversu margir karlmenn eru á biðlista eftir afplánun í fangelsi?
Skriflegt svar óskast.