Ferill 207. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 208  —  207. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um fullgildingu og lögfestingu samningsviðauka nr. 16 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950 (mannréttindasáttmála Evrópu).


Flm.: Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Eva Sjöfn Helgadóttir, Eyjólfur Ármannsson, Gísli Rafn Ólafsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Halldóra Mogensen, Helga Vala Helgadóttir, Inga Sæland, Jakob Frímann Magnússon, Jóhann Páll Jóhannsson, Tómas A. Tómasson.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni fyrir Íslands hönd að undirrita og fullgilda samningsviðauka nr. 16 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950 (mannréttindasáttmála Evrópu). Fullgilding samningsviðaukans skal fara fram eigi síðar en við árslok 2023. Ríkisstjórnin skal að því búnu stefna að því að efnisákvæði viðaukans verði lögfest svo fljótt sem verða má.

Greinargerð.

    Tillaga þessi var lögð fram á 152. löggjafarþingi (710. mál) en náði ekki fram að ganga. Tillagan er nú endurflutt í óbreyttri mynd.
    Samningsviðauki nr. 16 við samning um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950 (mannréttindasáttmála Evrópu) gekk í gildi 1. ágúst 2018 við fullgildingu tíu aðildarríkja á samningsviðaukanum: Albaníu, Armeníu, Eistlands, Finnlands, Frakklands, Georgíu, Litháen, San Marínó, Slóveníu og Úkraínu. Síðan þá hafa eftirfarandi lönd einnig fullgilt samningsviðaukann: Andorra, Bosnía og Hersegóvína, Grikkland, Holland, Lúxemborg og Slóvakía.
    Samningsviðaukinn heimilar æðstu dómstólum hvers aðildarríkis að óska eftir ráðgefandi áliti frá Mannréttindadómstól Evrópu þegar álitaefni kunna að rísa varðandi túlkun eða beitingu þeirra réttinda sem tryggð eru með mannréttindasamningi Evrópu eða tilheyrandi samningsviðaukum. Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu kveður upp slík ráðgefandi álit sem innibera röksemdafærslu dómstólsins en eru ekki bindandi.
    Beiðni um ráðgefandi álit þarf að varða mál sem liggur fyrir viðkomandi landsdómstól. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sjálfdæmi um það hvort dómstóllinn veitir ráðgefandi álit.
    Samkvæmt þáverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu (2015–2019), Guido Raimondi, styrkir samningsviðauki nr. 16 samtal milli Mannréttindadómstóls Evrópu og æðstu dómstóla aðildarríkjanna. Samningsviðaukinn er undirstöðuatriði í sögu mannréttindasáttmála Evrópu og meiri háttar þróun í verndun mannréttinda í Evrópu.
    Níu önnur lönd hafa einnig undirritað samningsviðaukann en eiga eftir að fullgilda hann: Aserbaídsjan, Belgía, Ítalía, Moldóva, Norður-Makedónía, Noregur, Rúmenía, Svartfjallaland og Tyrkland.