Ferill 240. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 241  —  240. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver er frá og með árinu 2018 árlegur fjöldi utanlandsferða ráðherra, og þeirra sem fóru með málefnasvið hans, vegna starfa á vegum ráðuneytis?
     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
     3.      Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/ 3 hluta dagpeninga og hve oft 2/ 3 hluta?
     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi ráðherra þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem ráðherra naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
     7.      Ef við á, hvenær komst hefð á að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda í ferðum ráðherra?
     8.      Ef við á, til hvaða aðgerða hefur verið gripið vegna ofgreiddra dagpeninga áður en farið var að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda samkvæmt reglum um ferðakostnað og dagpeninga?


Skriflegt svar óskast.