Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 247 — 246. mál.
Ráðherra.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sjúklinga með ME-sjúkdóminn.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hversu margir einstaklingar greindir með ME-sjúkdóminn (myalgic encephalomyelitis) hafa fengið úthlutað hjálpar- og stoðtækjum á sl. 10 árum? Hversu margir sóttu um slík tæki á sama tímabili og fengu neitun? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
2. Hvaða réttindi eiga þeir sem greindir eru með ME-sjúkdóminn til stuðnings innan heilbrigðis- og sjúkratryggingakerfisins?
Skriflegt svar óskast.