Ferill 260. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 261  —  260. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands.

Frá Oddnýju G. Harðardóttur.


    Hver var kostnaður ríkissjóðs við sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands, sundurliðað eftir:
     a.      launakostnaði,
     b.      kostnaði vegna breytinga á húsnæði,
     c.      kostnaði vegna breytinga á fjármögnun Fjármálaeftirlitsins og
     d.      öðrum mögulegum viðbótarkostnaði, ótilgreindum?


Skriflegt svar óskast.