Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 266 — 265. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um hagsmunaskráningu dómara.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Á grundvelli hvaða laga byggist birting á upplýsingum um hagsmunatengsl hæstaréttardómara sem hafa verið aðgengilegar frá byrjun árs 2017?
2. Telur ráðherra ástæðu til sambærilegrar birtingar á upplýsingum um hagsmunatengsl landsréttardómara, þar eð Landsréttur á lokaorðið í flestum dómsmálum frá því að hann tók til starfa í byrjun árs 2018?
Skriflegt svar óskast.