Ferill 275. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 278 — 275. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005 (franskar kartöflur).
Flm.: Jóhann Páll Jóhannsson.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 20. kafla tollskrár í viðauka I við lögin:
a.
A-tollur tollskrárnúmersins 2004.1002 verður 0%.
b.
A-tollur tollskrárnúmersins 2005.2002 verður 0%.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Franskar kartöflur bera 76% toll, sem er hæsti prósentutollur á matvöru í íslensku tollskránni. Samkvæmt fríverslunarsamningum við Kanada og Evrópusambandið eru franskar kartöflur þaðan fluttar inn á lægri tolli, eða 46%, og veldur því að neytendur greiða hærra verð fyrir vöruna sem því nemur. Hinn 24. ágúst sl. birtist frétt þess efnis að Þykkvabæjar ehf. hefði hætt framleiðslu á frönskum kartöflum. Þar með hefur framleiðslu á frönskum kartöflum á Íslandi verið hætt og standa því engin rök lengur til slíkrar tollverndar. Er því lagt til að innflutningstollur á franskar kartöflur verði afnuminn neytendum og fyrirtækjum til heilla.