Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 282  —  279. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017 (EES-reglur, einföldun útgáfu leyfa).

Frá innviðaráðherra.



1. gr.

    B-liður 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: farmflutninga á landi í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 klst. eða meiri og leyfð heildarþyngd ökutækjanna er yfir mörkum sem ráðherra kveður á um í reglugerð.

2. gr.

    Við 1. mgr. 4. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Almennt rekstrarleyfi er veitt til eftirfarandi flutninga:
     a.      farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem eru skráðar fyrir níu farþega eða fleiri,
     b.      farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni með sérútbúnum bifreiðum sem eru skráðar fyrir færri farþega en níu, sbr. 9. gr.,
     c.      farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni í tengslum við ferðaþjónustu með bifreiðum sem eru skráðar fyrir færri farþega en níu, sbr. 10. gr. og
     d.      farmflutninga á landi í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfilegur hámarkshraði er 45 km á klst. eða meiri og leyfð heildarþyngd ökutækjanna er yfir nánar tilgreindum mörkum sem ráðherra ákveður í reglugerð.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „sérstakt leyfi útgefið af Samgöngustofu“ í 1. málsl. kemur: almennt rekstrarleyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða skv. 4. gr.
     b.      Orðin „og að umsækjandi hafi almennt rekstrarleyfi skv. 4. gr.“ í 2. málsl. falla brott.
     c.      Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                 Almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni fyrir bifreiðar sem skráðar eru fyrir níu farþega eða fleiri veitir einnig rétt til reksturs sérútbúinna bifreiða sem skráðar eru fyrir færri en níu farþega skv. 1. mgr.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „sérstakt leyfi útgefið af Samgöngustofu“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni í tengslum við ferðaþjónustu skv. 4. gr.
     b.      Orðin „auk þess að hafa almennt rekstrarleyfi skv. 4. gr.“ í 2. málsl. 1. mgr. falla brott.
     c.      Í stað orðsins „ferðaþjónustuleyfis“ í 3. mgr. kemur: almenns rekstrarleyfis til farþegaflutninga í tengslum við ferðaþjónustu.
     d.      Í stað orðsins „ferðaþjónustuleyfis“ í 4. mgr. kemur: leyfis samkvæmt þessari grein.

5. gr.

    Á eftir 34. gr. kemur ný grein, 34. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Innleiðing.

    Lög þessi fela í sér innleiðingu ákvæða eftirtalinna reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins:
     1.      Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1071/2009 frá 21. október 2009 um sameiginlegar reglur varðandi skilyrði sem uppfylla þarf til þess að mega starfa sem flutningsaðili á vegum og um niðurfellingu á tilskipun ráðsins 96/26/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2014 frá 16. maí 2014, sem birt var 30. október 2014 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, bls. 31–43.
     2.      Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1072/2009 frá 21. október 2009 um sameiginlegar reglur um aðgang að mörkuðum fyrir farmflutninga á vegum milli landa, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2014 frá 16. maí 2014, sem birt var 30. október 2014 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, bls. 31–43.
     3.      Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1073/2009 frá 21. október 2009 um sameiginlegar reglur um aðgang að mörkuðum fyrir flutninga með hópbifreiðum milli landa og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 561/2006, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2014 frá 16. maí 2014, sem birt var 30. október 2014 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, bls. 31–43.
     4.      Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 181/2011 frá 16. febrúar 2011 um réttindi farþega í hópbifreiðum og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 2006/2004, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2015 frá 30. apríl 2015, sem birt var 4. ágúst 2016 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42, bls. 69–70.
     5.      Reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1370/2007 frá 23. október 2007 um almenna farþegaflutninga á járnbrautum og á vegum og um niðurfellingu á reglugerðum ráðsins (EBE) nr. 1191/69 og (EBE) nr. 1107/70, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2008 frá 4. júlí 2008, sem birt var 23. október 2008 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, bls. 13–14.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða

    Aðilar sem hafa fengið útgefin ferðaþjónustuleyfi eða leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða hjá Samgöngustofu fyrir gildistöku laga þessara skulu halda réttindum sínum eins og um viðeigandi almennt rekstrarleyfi væri að ræða þar til gildistíma leyfis lýkur.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017, vegna fyrirhugaðrar innleiðingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. Þá er með frumvarpinu lagt til að gerðar verði breytingar til einföldunar á ákvæðum laganna er varða leyfisveitingar.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 var tekin inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 77/2022 frá 18. mars 2022 um breytingu á X. viðauka (Almenn þjónusta) og XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn. Með reglugerðinni eru gerðar breytingar á regluverki er varðar farmflutninga á vegum, m.a. í því skyni að samræma reglur um aðgang að starfsgrein flutningsaðila á vegum sem stunda millilandaflutninga. Þannig hefur gildissvið reglna sem gilda um starfsgreinina verið útvíkkað þannig að þær taka nú til farmflutninga á vegum milli ríkja með ökutækjum sem eru yfir 2,5 tonn að leyfðri heildarþyngd en ekki aðeins með ökutækjum sem eru yfir 3,5 tonn að leyfðri heildarþyngd líkt og verið hefur. Þá hafa kröfur um staðfestu í aðildarríki verið hertar, ákvæði um gott orðspor flutningsaðila hafa verið gerðar ítarlegri, reglur um nauðsynleg gögn til skýringar á fjárhagsstöðu hafa verið skýrðar, skilgreining á alvarlegustu brotum þegar farið er yfir daglegan heimilan aksturstíma hefur verið samræmd við það sem fram kemur í reglugerð (EB) nr. 561/2006, reglur um gestaflutninga í farmflutningum hafa verið gerðar skýrari og gert hefur verið ráð fyrir skilum á rafrænum flutningsupplýsingum.
    Í ljósi framangreindra breytinga á gildissviði reglugerða (EB) nr. 1071/2009 og (EB) nr. 1072/2009 er nauðsynlegt að gera breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi en gildissvið laganna, að því er varðar farmflutninga takmarkast við farmflutninga á landi með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn og leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 km á klst. eða meiri. Í ljósi þess að lögin gilda ekki um farmflutninga á landi milli ríkja með ökutækjum þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 2,5 tonn en ekki yfir 3,5 tonn eru aðrar leiðir en lagasetning ekki færar til að innleiða megi reglugerð (ESB) 2020/1055 sem íslenska ríkið er skuldbundið að þjóðarrétti til að innleiða.
    Nú gera lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi ráð fyrir þrenns konar leyfum til farþegaflutninga, þ.e. almennu rekstrarleyfi til farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem eru skráðar fyrir níu farþega eða fleiri, leyfi til farþegaflutninga með sérútbúnum bifreiðum sem rúma færri farþega en níu og loks ferðaþjónustuleyfi til farþegaflutninga með bifreiðum sem rúma færri farþega en níu. Leyfi til farþegaflutninga með sérútbúnum bifreiðum má aðeins nota í tengslum við ferðamenn og umsækjandi um slíkt leyfi þarf auk þess að hafa almennt rekstrarleyfi. Ferðaþjónustuleyfi má aðeins nota í tengslum við ferðaþjónustu og skal umsækjandi um slíkt leyfi hafa rekstrarleyfi frá Ferðamálastofu sem annaðhvort ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa og auk þess hafa almennt rekstrarleyfi. Þjónusta sem veitt er á grundvelli ferðaþjónustuleyfis skal eigi vara skemur en hálfsdagsferð eða sem hluti af annarri viðurkenndri ferðaþjónustu. Þær breytingar sem lagðar eru til í þessu frumvarpi gera ráð fyrir því að ekki verði lengur gefin út leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða eða ferðaþjónustuleyfi. Þessi í stað gefi Samgöngustofa út eitt og sama leyfið til farþegaflutninga eða farmflutninga samkvæmt lögunum en leyfi verði skilyrt og bundin tilteknum flutningum. Með þessu er gert ráð fyrir að stjórnsýsla verði einfölduð rekstraraðilum til hagsbóta.
    Til viðbótar við framangreindar breytingar er lagt til að bætt verði við lögin sérstöku innleiðingarákvæði þar sem fram komi hvaða reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins eru innleiddar með lögum nr. 28/2017 en slíkt ákvæði er ekki að finna í lögunum.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Frumvarpið skiptist í fimm greinar, auk gildistökuákvæðis og ákvæðis til bráðabirgða. Lagðar eru til breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017. Breytingarnar eru eftirfarandi:
     1.      Í stað þess að gildissvið laganna, að því er varðar farmflutninga, takmarkist við flutninga á landi í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn og leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 km á klst. eða meiri verði ráðherra falið að kveða á um mörk leyfðrar heildarþyngdar í reglugerð.
     2.      Almennt rekstrarleyfi verði gefið út til nánar tilgreindra flutninga sem taldir verði upp í nýjum stafliðum 1. mgr. 4. gr. laganna.
     3.      Í stað þess að gera kröfu um sérstakt leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða til viðbótar við almennt rekstrarleyfi verði einfaldlega gerð krafa um annaðhvort almennt rekstrarleyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða eða almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga með hópbifreiðum.
     4.      Í stað þess að gera kröfu um sérstakt ferðaþjónustuleyfi verði aðeins gerð krafa um almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni í tengslum við ferðaþjónustu.
     5.      Leyfi sem hafa verið gefin út í samræmi við ákvæði gildandi laga haldi gildi sínu þar til gildistíma þeirra lýkur.
     6.      Bætt verði við lögin sérstöku innleiðingarákvæði.
    Með breytingu á gildissviðsákvæði laganna þannig að ráðherra verði falið að kveða á um leyfða heildarþyngd þeirra ökutækja til farmflutninga í atvinnuskyni sem lögin gilda um er tryggð lagastoð til innleiðingar reglugerðar (ESB) 2020/1055. Önnur ákvæði frumvarpsins eru til þess fallin að einfalda stjórnsýslu og gera regluverk er snýr að leyfisveitingum til farþegaflutninga skýrara með því að fækka útgefnum leyfum, án þess þó að draga úr kröfum sem gerðar eru til umsækjenda. Ákvæði til bráðabirgða tryggir að handhafar leyfa sem gefin hafa verið út samkvæmt gildandi lögum glati ekki réttindum sem þeim hafa verið veitt á þeim grunni.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Lagt er til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020 um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 1071/2009, (EB) nr. 1072/2009 og (ESB) nr. 1024/2012 að því er varðar að aðlaga þær að þróun sem orðið hefur á sviði flutninga á vegum. Með reglugerðinni er gildissviði reglugerða (EB) nr. 1071/2009 og (EB) 1072/2009 breytt en reglugerðirnar (EB) eru innleiddar með lögum nr. 28/2017 og í reglugerð settri samkvæmt heimild í þeim lögum. Í ljósi þess að gildissvið laganna takmarkast við ökutæki þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn að því er varðar farmflutninga er nauðsynlegt að gera breytingar á gildissviði laganna svo að innleiða megi reglugerð (ESB) 2020/1055. Íslenska ríkið er skuldbundið að þjóðarétti til að innleiða reglugerðina.

5. Samráð.
    Áform um lagasetningu voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 13. júlí 2022, sbr. mál nr. 120/2022. Engar umsagnir bárust. Þá voru drög að ákvæðum frumvarpsins ásamt greinargerð birt í samráðsgátt stjórnvalda 31. ágúst 2022, sbr. mál nr. 156/2022. Engar umsagnir bárust.

6. Mat á áhrifum.
    Samþykkt frumvarpsins kemur fyrst og fremst til með að hafa þau áhrif að stjórnsýsla tengd leyfisveitingum vegna farþegaflutninga á landi verður einfölduð. Þá munu breytingar á gildissviðsákvæði tryggja að íslenska ríkið geti staðið við þjóðréttarlegar skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum. Ekki er talið að þær breytingar á gildissviði sem felast í reglugerð (ESB) 2020/1055 komi til með að hafa mikil áhrif hér á landi í ljósi þess að breytingin tekur aðeins til ökutækja með leyfða heildarþyngd yfir 2,5 en ekki yfir 3,5 tonn í alþjóðlegum flutningum. Vegna landfræðilegrar legu Íslands er gert ráð fyrir að breyting á gildissviði laganna hafi hverfandi áhrif.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Með greininni er lagt til að í stað þess að kveðið sé á um það í b-lið 1. mgr. 1. gr. laganna að gildissvið þeirra sé bundið við flutninga með ökutækjum með leyfða heildarþyngd yfir tilteknum mörkum, að því er varðar farmflutninga á landi, verði ráðherra falið að útfæra slík mörk í reglugerð.

Um 2. gr.

    Með greininni er lagt til að almennt rekstrarleyfi skv. 4. gr. laganna verði gefið út til tiltekinnar tegundar flutninga en um ferns konar flutninga getur verið að ræða. Með því móti er gert ráð fyrir að umsóknarferli vegna leyfa til farþega- og/eða farmflutninga samkvæmt lögunum verði einfaldara en verið hefur. Umsækjandi fái þannig úthlutað einu leyfi sem bundið er við þá tegund flutninga sem hann hyggst stunda. Ætli umsækjandi t.d. að stunda farþegaflutninga með hópbifreiðum auk farþegaflutninga í tengslum við ferðaþjónustu skv. 10. gr. skilar viðkomandi inn viðeigandi gögnum og fær þá útgefið eitt almennt rekstrarleyfi bundið við slíka flutninga, að því gefnu að umsækjandi uppfylli skilyrði laga til útgáfu leyfis.

Um 3. gr.

    Með greininni eru lagðar til breytingar á 9. gr. laganna um rekstur sérútbúinna bifreiða. Í stað þess að gerð sé krafa um sérstakt leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða til viðbótar við almennt rekstrarleyfi skv. 4. gr. verði aðeins gerð krafa um almennt rekstrarleyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða og leyfið því bundið við slíka flutninga. Þannig verði aðeins um eitt leyfi að ræða í stað tveggja. Eftir sem áður eru skilyrðin til að öðlast leyfi þau sömu. Einnig er lagt til að almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem skráðar eru fyrir níu farþega eða fleiri veiti rétt til reksturs sérútbúinna bifreiða sem rúma færri en níu farþega samkvæmt þessari grein.

Um 4. gr.

    Með greininni eru lagðar til breytingar á 10. gr. laganna um ferðaþjónustuleyfi. Í stað þess að gerð sé krafa um sérstakt ferðaþjónustuleyfi til viðbótar við almennt rekstrarleyfi skv. 4. gr. verði aðeins gerð krafa um almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni í tengslum við ferðaþjónustu og leyfið því bundið við slíka flutninga. Þannig verði aðeins um eitt leyfi að ræða í stað tveggja. Eftir sem áður eru skilyrðin til að öðlast leyfi þau sömu og verður því áfram gerð krafa um rekstrarleyfi sem annaðhvort ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa útgefið af Ferðamálastofu.

Um 5. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.

Um 6. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.

Um ákvæði til bráðabirgða.

    Ákvæðinu er ætlað að taka af öll tvímæli um það hvernig fara skuli með réttindi þeirra sem hafa gild ferðaþjónustuleyfi eða leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða samkvæmt lögunum verði frumvarpið samþykkt. Gert er ráð fyrir því að umræddir leyfishafar haldi réttindum sínum líkt og um viðeigandi almennt rekstrarleyfi væri að ræða. Þegar kemur að endurnýjun leyfis færi um útgáfu leyfis eftir ákvæðum nýrra laga.