Ferill 303. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 308  —  303. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um geislafræðinga.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.


     1.      Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
     2.      Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
     3.      Hve mörg stöðugildi geislafræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
     4.      Hversu margir geislafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
     5.      Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
     6.      Hefur ráðuneytið skilgreint störf geislafræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
     7.      Hvert er lágmarksviðmið um mönnun geislafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
     8.      Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt geislafræðinga?
     9.      Hversu mörg stunda nám í geislafræði til BS-gráðu (180 ECTS)?


Skriflegt svar óskast.