Ferill 304. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 309  —  304. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um lífeindafræðinga.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.


     1.      Hve mörg stöðugildi lífeindafræðinga voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
     2.      Hversu margir lífeindafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
     3.      Hve mörg stöðugildi lífeindafræðinga voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
     4.      Hversu margir lífeindafræðingar mönnuðu þessi stöðugildi?
     5.      Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
     6.      Hefur ráðuneytið hafið vinnu við að skilgreina störf lífeindafræðinga í heilbrigðiskerfinu og hvort störf þeirra eða hluti starfa þeirra geti verið unninn af öðrum fagstéttum í heilbrigðiskerfinu?
     7.      Hvert er lágmarksviðmið um mönnun lífeindafræðinga á heilbrigðisstofnunum?
     8.      Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt lífeindafræðinga?
     9.      Getur ráðuneytið upplýst um fjölda einstaklinga sem leggja stund á nám í lífeindafræði til BS-gráðu (180 ECTS)?
     10.      Getur ráðuneytið upplýst um fjölda einstaklinga sem leggja stund á diplómanám til starfsréttinda í lífeindafræði (60 ECTS)?


Skriflegt svar óskast.