Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 314  —  309. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um íslenskukennslu fyrir útlendinga.

Frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.


     1.      Hversu margar símenntunarmiðstöðvar, greint eftir landsvæðum, sinna virkri íslenskukennslu fyrir útlendinga og hvað heita þær?
     2.      Hversu margir útlendingar, greint eftir landsvæðum, sækja íslenskukennslu sem í boði er hjá símenntunarmiðstöðvum?
     3.      Hvaða menntun hafa þeir kennarar sem sinna íslenskukennslu fyrir útlendinga hjá símenntunarmiðstöðvum, greint eftir landsvæðum?


Skriflegt svar óskast.