Ferill 186. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 340 — 186. mál.
Svar
matvælaráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um álit auðlindanefndar frá árinu 2000.
1. Er ráðherra sammála áliti auðlindanefndar frá árinu 2000 um að nýtingarréttur aflahlutdeildar eigi að vera tímabundinn eða uppsegjanlegur með tilteknum fyrirvara?
Auðlindanefnd taldi að skýra þyrfti betur umgjörð laga sem snúa að því að fiskstofnarnir séu sameign þjóðarinnar en aflahlutdeild sé úthlutað án tímatakmarkana. Fyrsta skref til að leysa þann vanda taldi auðlindanefnd vera þann að treysta betur lagalegan grundvöll þjóðareignar náttúruauðlinda. Það er afstaða ráðherra að taka ætti auðlindaákvæði upp í stjórnarskrá. Einnig telur ráðherra að í því auðlindaákvæði þurfi að vera skýrt að enginn geti fengið auðlindir í eigu þjóðarinnar til varanlegra afnota eða eignar. Í framhaldi af því þyrfti að útfæra betur í lögum um stjórn fiskveiða til hve langs tíma hægt er að fá afnotarétt af auðlindum í eigu þjóðar. Rétt er að taka fram að auðlindanefnd tilgreindi tvær mismunandi leiðir til þess, hina svokölluðu fyrningarleið annars vegar og veiðigjaldsleið hins vegar.
2. Er ráðherra sammála áliti auðlindanefndar frá sama ári um að tímabundinn afnotaréttur til veiða skuli aðeins teljast til takmarkaðra eignarréttinda?
Í skýrslu auðlindanefndar kemur fram tillaga um að setja í stjórnarskrá ákvæði um að náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignarrétti skuli vera þjóðareign eftir því sem nánar sé ákveðið í lögum. Um var að ræða almennt ákvæði sem átti að gilda um allar náttúruauðlindir og landsréttindi en ekki aðeins nýtingu fiskstofna.
Einnig kemur þar fram að handhafar löggjafar- og framkvæmdarvalds skuli fara með forsjá, vörslu og ráðstöfunarrétt þessara auðlinda og réttinda í umboði þjóðarinnar. Náttúruauðlindir og landsréttindi í þjóðareign má ekki selja eða láta varanlega af hendi til einstaklinga eða lögaðila. Þó má veita þeim heimild til afnota eða hagnýtingar á þessum auðlindum og réttindum gegn gjaldi, að því tilskildu að hún sé tímabundin eða henni megi breyta með hæfilegum fyrirvara eftir því sem nánar er ákveðið í lögum.
Tillaga auðlindanefndar með framangreindu ákvæði var lögð fram í frumvarpi til stjórnarskipunarlaga á 151. löggjafarþingi, sbr. þskj. 787, 466. mál, en frumvarpið var ekki samþykkt.
Ráðherra telur rétt að kveða á um nánari útfærslu á ákvæðinu í lögum en ekki í stjórnarskrá. Í dag er réttarstaðan sú að aflaheimildir eru aðeins varanlegar í þeim skilningi að þær verða hvorki felldar niður né þeim breytt nema með lögum, sbr. dóm Hæstaréttar frá 6. apríl 2000 í máli nr. 12/2000.
Í lögum nr. 58/1998, um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, hefur verið gengið lengra. Þar hefur verið lögfest sérstakt ákvæði um að íslenska ríkið sé eigandi lands og hvers konar landsréttinda og hlunninda í þjóðlendum sem ekki eru háð einkaeignarrétti.
Í sáttmála um ríkisstjórnarsamstarf Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 28. nóvember 2021 kemur eftirfarandi fram í kafla um sjávarútvegsmál: „Skipuð verður nefnd til að kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum og meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnunarkerfisins. Nefndinni verði falið að bera saman stöðuna hér og erlendis og leggja fram tillögur til að hámarka möguleika Íslendinga til frekari árangurs og samfélagslegrar sáttar um umgjörð greinarinnar. Nefndin fjalli einnig um hvernig hægt er að auka gagnsæi í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi og þá sérstaklega meðal stærstu fyrirtækja landsins. Þá meti nefndin árangur af atvinnu- og byggðakvóta og strandveiðum til að styðja við atvinnulíf í landsbyggðunum.“
Þá er í stjórnarsáttmálanum einnig kveðið á um að flýta skuli eins og kostur er orkuskiptum í sjávarútvegi og stutt verði við öflugt styrkjakerfi, samstarf við háskólasamfélagið og stuðningsumhverfi rannsókna og þróunar til að stuðla að nýsköpun í sjávarútvegi og tengdum greinum.
Í ljósi reynslu af vinnu við endurskoðun á fiskveiðilöggjöfinni á undanförnum árum og áratugum hefur matvælaráðherra ákveðið að beita nýrri nálgun við þær fjölmörgu áskoranir og tækifæri sem eru í sjávarútvegi og snerta samfélagið allt með beinum og óbeinum hætti. Í stað einnar stórrar nefndar hefur ráðherra stofnað til opins og gagnsæs verkefnis fjölmargra aðila sem unnið verður með skipulegum hætti á kjörtímabilinu. Verkefnið nefnist Auðlindin okkar. 1 Samráðsnefnd um sjávarútvegsstefnu, sem ráðherra stýrir, hefur yfirsýn yfir starf fjögurra sjálfstæðra starfshópa um tiltekin verkefni. Starfshóparnir eru Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri. Markmið matvælaráðherra með þessu starfi er hagkvæm og sjálfbær nýting sjávarauðlinda í sátt við umhverfi og samfélag. Fyrirhugaðar lokaafurðir þessa starfs eru m.a. ný heildarlög um stjórn fiskveiða eða ný lög um auðlindir hafsins og aðrar lagabreytingar, verkefni á sviði orkuskipta, nýsköpunar, hafrannsókna og gagnsæi og kortlagning eignatengsla í sjávarútvegi.
Ráðherra mun ekki taka afstöðu til þess hvernig rétt sé að útfæra þau lög fyrr en samráðsnefndin og starfshóparnir hafa lokið vinnu sinni og sent ráðherra tillögur sínar.
1 www.stjornarradid.is/audlindin-okkar/