Ferill 334. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 346  —  334. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um aðkomu öryrkja og ellilífeyrisþega að kjaraviðræðum.


Flm.: Eyjólfur Ármannsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson, Wilhelm Wessman.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja aðkomu heildarsamtaka öryrkja og ellilífeyrisþega að viðræðum ríkisstjórnarinnar og fulltrúa vinnuveitenda og launþega um komandi kjarasamninga og tryggja að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í viðræðunum ásamt því að ríkisstjórnin taki rökstudda afstöðu til þeirra sjónarmiða áður en viðræðunum lýkur.

Greinargerð.

    Tillaga þessa efnis var áður flutt á 152. löggjafarþingi (17. mál).
    Nú eru fulltrúar vinnuveitenda og launþega í þann mund að hefja viðræður um gerð kjarasamninga. Stærsti einstaki kjarasamningurinn, lífskjarasamningurinn, rennur út 1. nóvember næstkomandi. Fjölmörg fordæmi eru fyrir því að ríkisstjórnin hafi aðkomu að kjaraviðræðum þegar um er að ræða víðfeðma samninga milli fjölda samtaka, bæði launþega og vinnuveitenda. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að gerð lífskjarasamninganna árið 2019 er aðeins eitt dæmi af mörgum. Þá gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um að ráðist yrði í ýmsar aðgerðir, að upphæð 80 milljarðar kr. á gildistíma lífskjarasamninganna, til að styðja við markmið samninganna um stöðugleika og bætt kjör launafólks.
    Nauðsynlegt er að fulltrúar öryrkja og ellilífeyrisþega eigi sæti við borðið í samningaviðræðum milli ríkis, launþega og vinnuveitenda um kaup og kjör í landinu. Sagan sýnir að í slíkum viðræðum eru iðulega teknar veigamiklar ákvarðanir um ráðstöfun opinberra fjármuna, sem varða hagsmuni allra landsmanna og því ber ríkinu að tryggja það að öryrkjar og ellilífeyrisþegar fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
    Í 69. gr. laga um almannatryggingar segir að bætur almannatrygginga skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þrátt fyrir þau skýru lagafyrirmæli hafa fjárhæðir almannatrygginga ekki fylgt launaþróun undanfarin ár og nú mælist uppsöfnuð kjaragliðnun í tugum prósenta.
    Öryrkjar og ellilífeyrisþegar geta ekki nýtt sér verkfallsrétt til að krefjast kjarabóta. Það hefur tvímælalaust áhrif á þróun kjara þeirra, enda hefur ríkisstjórn eftir ríkisstjórn virt mannréttindi þeirra svo gott sem að vettugi.
    Það er afar mikilvægt að sátt náist, ekki aðeins milli fulltrúa vinnumarkaðarins og ríkisins, heldur einnig lífeyrisþega. Slík sátt myndi skapa grundvöll fyrir auknum jöfnuði í samfélaginu.