Ferill 350. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 363 — 350. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um gagnkvæma gildingu ökuskírteina.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Við hvaða lönd hefur Ísland gert samning um gagnkvæma gildingu ökuskírteina skv. 62. gr. umferðarlaga?
2. Á að semja um gagnkvæma gildingu ökuskírteina við fleiri lönd? Ef svo er, hvaða lönd?
Skriflegt svar óskast.