Ferill 354. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 367  —  354. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um skordýr.

Frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur.


     1.      Hefur staða skordýra í íslensku vistkerfi verið kortlögð?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að bæta stöðu frjóvgandi skordýra í íslensku vistkerfi, t.d. með fjölgun plantna í almannarými, vernd óraskaðra svæða eða banni við notkun skordýraeiturs?


Skriflegt svar óskast.