Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 383 — 368. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um greiðslur til fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur.
1. Hversu mikið hafa ríki og sveitarfélög greitt fyrirtækjum í velferðarþjónustu sem rekin eru í hagnaðarskyni fyrir þjónustu sína, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum á tímabilinu 2012–2022?
2. Hversu háar arðgreiðslur hafa fyrrgreind fyrirtæki greitt sér á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir fyrirtækjum og árum?
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að takmarka arðgreiðslur í velferðarþjónustu?
Skriflegt svar óskast.