Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 436  —  242. mál.
Leiðrétt fjárhæð.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.


     1.      Hver er frá og með árinu 2018 árlegur fjöldi utanlandsferða ráðherra, og þeirra sem fóru með málefnasvið hans, vegna starfa á vegum ráðuneytis?
2018 2019 2020 2021 2022
Fjöldi ferða 9 4 1 1 8

     2.      Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
2018 2019 2020 2021 2022
Dagpeningar 231.523 148.289 32.020 56.215 590.749

     3.      Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
    Nýjar reglur um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra í ríkisstjórn Íslands voru gefnar út árið 2021. Þar segir í 2. gr.: „vegna ferðalaga erlendis samkvæmt þessari grein skulu ráðherrum greiddir dagpeningar vegna fæðis og annars kostnaðar, þ.e. daghluta. Auk þess skal þeim greiddur ferða- og gistikostnaður.“ Frá 2021 á því þessi spurning ekki lengur við.
1/3 2/3
2018 0 9
2019 0 4
2020 0 1
2021 Á ekki við Á ekki við
2022 Á ekki við Á ekki við

     4.      Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
2018 2019 2020 2021 2022
Hótel 673.482 359.876 118.320 177.025
Fargjöld 1.339.401 893.456 112.322 88.015 1.586.246

     5.      Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi ráðherra þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
    Hefð hefur verið fyrir því að ráðherrum sé ekið út á flugvöll í ráðherrabifreiðum og er litið á það sem öryggismál. Samkvæmt reglum fjármála- og efnahagsráðherra frá 13. ágúst 2021, um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra, skal ríkið leggja ráðherrum til bifreið til afnota vegna starfa sinna og skal sú bifreið vera sérútbúin með öryggiskerfi og staðsetningarbúnaði. Bifreiðunum skal að jafnaði ekið af sérstökum bifreiðarstjóra sem sinnir jafnframt hlutverki öryggisvarðar hlutaðeigandi ráðherra. Í framangreindum reglum er ekki gert ráð fyrir breytingum á dagpeningum til ráðherra vegna þessara akstursráðstafana.

     6.      Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem ráðherra naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
    Ekki hefur tíðkast að starfsmenn, þ.m.t. ráðherrar, þurfi að gera grein fyrir þeim hlunnindum sem þeir njóta á ferðum erlendis. Ekkert hefur verið um styrki á ferðalögum ráðherra eða annars starfsfólks ráðuneytanna á ferðalögum erlendis.

     7.      Ef við á, hvenær komst hefð á að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda í ferðum ráðherra?
     8.      Ef við á, til hvaða aðgerða hefur verið gripið vegna ofgreiddra dagpeninga áður en farið var að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda samkvæmt reglum um ferðakostnað og dagpeninga?
    Sjá svar við 6. tölul.