Ferill 405. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 452  —  405. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn ráðuneyta.

Frá Helgu Völu Helgadóttur.


     1.      Hvert geta starfsmenn ráðuneyta leitað sem telja sig verða fyrir vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra, svo sem einelti og áreitni eða annars konar ofbeldi?
     2.      Hefur forsætisráðherra verið upplýst formlega eða óformlega um að ráðherra hafi sýnt af sér slíka háttsemi? Ef svo er, hver voru viðbrögð ráðherrans og í hvaða farveg fóru slík mál?
     3.      Hefur eitthvert ráðuneyta Stjórnarráðsins gert samning um sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn sl. 5 ár? Ef svo er, hvaða ráðuneyti er um að ræða og hvert var tilefni slíks samnings/samninga?
     4.      Hver er útlagður kostnaður ráðuneyta Stjórnarráðsins af kaupum á sálfélagslegum stuðningi við starfsfólk vegna vanlíðunar og/eða álags á vinnustað sl. 5 ár?


Skriflegt svar óskast.