Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.

Þingskjal 456  —  408. mál.
Flutningsmenn.




Tillaga til þingsályktunar


um þyrlupall á Heimaey.


Flm.: Ásmundur Friðriksson, Birgir Þórarinsson, Bryndís Haraldsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Guðrún Hafsteinsdóttir.


    Alþingi ályktar að fela innviðaráðherra að gera nú þegar ráðstafanir til að Isavia geti hannað og staðsett þyrlupall á Heimaey til að auka enn frekar öryggi í sjúkra- og neyðarflugi til Vestmannaeyja.

Greinargerð.

    Þingsályktunartillaga þessi var lögð fram á 149. löggjafarþingi (121. mál), 150. löggjafarþingi (54. mál), 151. þingi (144. mál) og á 152. þingi (187. mál) og er nú lögð fram að nýju lítillega breytt.
    Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið tugi ferða á undanförnum árum til Vestmannaeyja í sjúkraflug þegar engin önnur leið er fær milli lands og Eyja. Sjúkraflugferðir til Vestmannaeyja eru um 100 á ári en flugið er mörgum annmörkum háð. Aðkallandi sjúkraflug sem Landhelgisgæslan hefur farið í síðastliðin ár skipta tugum og hafa þyrlur Landhelgisgæslunnar oft þurft að lenda við afar erfiðar aðstæður þegar flugvöllurinn er lokaður allri umferð. Í slíkum neyðartilvikum þarf að notast við Hamarsveg, vestan Dverghamars, sem lendingarstað. Að þurfa að lenda björgunarþyrlu á vegi með almennri umferð í slæmu skyggni getur ekki talist örugg aðferð til langframa. Ekkert merkt svæði eða lendingarpallur er í Vestmannaeyjum í slíkum tilfellum og mikilvægt að auka öryggi íbúanna með gerð þyrlupalls. Staðsetningu þyrlupalls þarf að ákveða í samráði við Isavia í Vestmannaeyjum, yfirstjórn sjúkraflutninga HSU, flugdeild Landhelgisgæslu Íslands og skipulagsyfirvöld í Vestmannaeyjum. Að útbúa þyrlupall opnar á möguleika að gera svokallað GPS (RNAV) aðflug að pallinum, jafnvel stutt EGNOS-leiðréttingamerki í framtíðinni, sem myndi auka á öryggi flugs.
    Það tekur um það bil tvær klukkustundir að undirbúa og koma sjúkraflugvél til Eyja frá því að útkall kemur og þar til vélin lendir í Eyjum. Staðsetning sjúkraflugs á Akureyri er nánast lengsta mögulega flugleið frá landsbyggðinni til Eyja. Veður getur breyst eins og hendi sé veifað í Vestmannaeyjum og það gerist að sjúkraflugvél sem lögð er af stað til Eyja á ekki möguleika á að lenda þar. Þar getur verið mjög misvindasamt, skýjahæð undir 500 fetum og oft krefjandi aðstæður sem sjúkraflugvél ræður ekki við. Við þær aðstæður þarf að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja sjúka eða slasaða til Eyja.
    Í Vestmannaeyjum búa 4.470 manns samkvæmt tölum Hagstofu Íslands 1. júlí 2022 við áhættusækið atvinnulíf og skerta sjúkrahúsþjónustu í alvarlegustu tilfellum. Fæðingarþjónusta er rekin með ljósmæðravakt, en ekki er rekin sérfræðiþjónusta lækna allan sólarhringinn. Sjúkraflug er því mikilvægur öryggisventill sem alls ekki má bregðast þegar neyðarástand skapast í Eyjum. Fyrirséð er að þyrla verður áfram mikilvægt öryggistæki fyrir sjúkraflug frá Eyjum þegar flugvöllurinn er lokaður, Herjólfur ekki í siglingum og Landeyjahöfn jafnvel lokuð. Þá er uppi óvissa um áætlunarflug til Vestmannaeyja. Það er því mikilvægt að búa þannig að þyrlufluginu að besta mögulega aðstaða verði gerð sem fyrst sem nýtist þegar flugvöllurinn í Eyjum lokast vegna veðurfarsaðstæðna sem enginn ræður við eins og gerist iðulega fyrirvaralítið í Eyjum. Einnig þarf vel skilgreind þjónusta að fylgja þyrlupallinum eins og sjálfvirk veðurstöð, ljósabúnaður og blindaðflug.