Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 460  —  412. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stöðu námslána hjá Menntasjóði námsmanna.

Frá Steinunni Þóru Árnadóttur.


     1.      Hver er heildarupphæð þeirra ábyrgða sem enn hvíla á námslánum hjá Menntasjóði námsmanna eftir almenna niðurfellingu þeirra árið 2020?
     2.      Hversu háar greiðslur fékk sjóðurinn frá ábyrgðarmönnum vegna gjaldfallinna námslána á almanaksárinu 2021?
     3.      Hefur verið farið í einhvers konar aðfarargerðir gagnvart ábyrgðarmönnum námslána frá því að niðurfellingin var lögfest á grundvelli skulda gagnvart sjóðnum? Ef svo er, hve margar hafa þær verið?


Skriflegt svar óskast.