Ferill 279. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 615 — 279. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017 (EES-reglur, einföldun útgáfu leyfa).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ólaf Kr. Hjörleifsson og Jónas Birgi Jónasson frá innviðaráðuneytinu.
Nefndinni barst umsögn um málið frá Ferðamálastofu. Þá barst nefndinni minnisblað frá innviðaráðuneytinu.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017, vegna fyrirhugaðrar innleiðingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1055 frá 15. júlí 2020. Um er að ræða breytingar til einföldunar á ákvæðum laganna er varða leyfisveitingar. Þá er lögð til breyting á gildissviðsákvæði laganna þannig að ráðherra verði falið að kveða á um leyfða heildarþyngd þeirra ökutækja til farmflutninga í atvinnuskyni sem lögin gilda um í reglugerð í stað þess að heildarþyngdin sé tilgreind í lögunum, og að við lögin bætist innleiðingarákvæði.
Umfjöllun nefndarinnar.
Við framlagningu frumvarpsins fylgdi því ekki kostnaðarmat líkt og skylt er skv. 37. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, og 66. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Óskað var eftir því við innviðaráðuneytið að nefndinni yrði sent kostnaðarmat ráðuneytisins vegna málsins. Nefndinni barst mat ráðuneytisins 17. nóvember 2022 með minnisblaði. Þar kemur m.a. fram að gert sé ráð fyrir því að samþykkt frumvarpsins komi til með að hafa óveruleg áhrif á útgjöld og tekjur ríkisins.
Breytingartillögur.
Með 1. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað þess að kveðið sé á um það í lögunum að gildissvið þeirra sé bundið við flutninga með ökutækjum með leyfða heildarþyngd yfir tilteknum mörkum, að því er varðar farmflutninga á landi, verði ráðherra falið að útfæra slík mörk í reglugerð. Breytingin er ekki rökstudd sérstaklega í greinargerð frumvarpsins. Telur nefndin að betur fari á að kveðið sé á um viðmiðunarmörk um leyfða heildarþyngd ökutækja í lögum og leggur til breytingartillögu þess efnis. Taka þau mörk sem lögð eru til mið af ákvæðum framangreindrar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins.
Í 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna kemur fram að eitt skilyrða leyfis skv. 1. málsl. sé að umsækjandi hafi rekstrarleyfi annaðhvort sem ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa. Í umsögn Ferðamálastofu var bent á að með lögum um Ferðamálastofu, nr. 96/2018, kom inn nýtt heiti ferðasala dagsferða í stað ferðaskipuleggjanda. Það sem áður hét leyfi ferðaskipuleggjanda sé því leyfi ferðasala dagsferða samkvæmt lögum um Ferðamálastofu. Með vísan til þessa leggur nefndin til breytingu á 4. gr. frumvarpsins þess efnis að í stað orðsins „ferðaskipuleggjandi“ í 2. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna komi „ferðasali dagsferða“.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 1. gr. orðist svo:
B-liður 1. mgr. 1. gr. laganna orðast svo: farmflutninga á landi í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn, eða yfir 2,5 tonn í farmflutningum á milli landa, og leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 km á klst. eða meiri.
2. B-liður 4. gr. orðist svo: 2. málsl. 1. mgr. orðast svo: Skilyrði slíks leyfis er að það sé notað í tengslum við ferðaþjónustu og skal umsækjandi hafa rekstrarleyfi annaðhvort sem ferðasali dagsferða eða ferðaskrifstofa.
Orri Páll Jóhannsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 25. nóvember 2022.
| Vilhjálmur Árnason, form. |
Ingibjörg Isaksen, frsm. |
Andrés Ingi Jónsson. | |
| Halla Signý Kristjánsdóttir. | Njáll Trausti Friðbertsson. | René Biasone. | |
| Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. | Þórunn Sveinbjarnardóttir. | ||