Ferill 243. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 657 — 243. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.
1. Hver er frá og með árinu 2018 árlegur fjöldi ferða ráðherra til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytis?
| |
Árlegur fjöldi ferða ráðherra til útlanda vegna starfa á vegum ráðuneytis frá 2018 | Árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða
|
Árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar | |
| Fargjald | Gisting | |||
| 2018 |
8
|
667.151 | 1.199.286 | 855.909 |
| 2019 | 8 | 636.827 | 1.107.992 | 692.137 |
| 2020 | 1 | 40.104 | 97.663 | 39.550 |
| 2021 | Engin ferð | |||
| Jan.– sept. 2022 | 2 | 144.840 | 262.370 | 189.451 |
2. Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
Sjá töflu í svari við 1. tölul. fyrirspurnar.
3. Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
Ráðherra fékk greidda 2/ 3 hluta dagpeninga, í samræmi við 9. gr. þágildandi reglna nr. 1/2009 um greiðslu ferðakostnaðar vegna ferðalaga á vegum ríkisins, fyrir þær ferðir sem hann fór í á árunum 2018–2020. Fjármála- og efnahagsráðherra setti nýjar reglur um greiðslur ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra sem tóku gildi 25. ágúst 2020. Samkvæmt þeim fá ráðherrar greidda dagpeninga vegna fæðis og annars kostnaðar, þ.e. daghluta, í samræmi við það sem almennt gildir um ferðalög ríkisstarfsmanna og annarra sem ferðast á vegum ríkisstofnana. Með nýju reglunum var sérstakt álag sem ráðherrar höfðu fengið á dagpeninga fellt niður. Þessi liður fyrirspurnarinnar á því ekki við frá og með þeim tíma.
4. Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
Sjá töflu í svari við 1. tölul. fyrirspurnar.
5. Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi ráðherra þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
Almennt gildir að ráðherra er ekið á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis vegna ferða hans í tengslum við starf sitt og er það í samræmi við 6. gr. reglna um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra. Í sömu reglum kemur fram að ráðherrum skulu greiddir dagpeningar vegna fæðis og annars kostnaðar, þ.e. daghluta. Greiðsla fyrir hverja ferð ræðst af fjölda ferðadaga en ekki vægi einstakra kostnaðarliða. Ekki hefur komið til endurgreiðslu á dagpeningum.
6. Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem ráðherra naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
Ef ráðherra þiggur hlunnindi á ferðalögum sínum eins og gistingu og fargjöld lækkar það kostnað ríkisins þar sem þau eru bókuð og greidd af viðkomandi aðila. Á ferðalögum ber við að gestgjafi bjóði einhvern viðurgerning, svo sem tilfallandi veitingar eða máltíðir. Ekki hefur tíðkast að leggja sérstakt mat á umfang þess háttar viðurgernings þannig að það hafi leitt til frádráttar á daghluta dagpeningagreiðslna enda eru slík boð tilfallandi.
7. Ef við á, hvenær komst hefð á að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda í ferðum ráðherra?
Sjá svar við 6. tölul. fyrirspurnar.
8. Ef við á, til hvaða aðgerða hefur verið gripið vegna ofgreiddra dagpeninga áður en farið var að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda samkvæmt reglum um ferðakostnað og dagpeninga?
Sjá svar við 6. tölul. fyrirspurnar.