Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 669 — 237. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra.
1. Hver er frá og með árinu 2018 árlegur fjöldi utanlandsferða ráðherra, og þeirra sem fóru með málefnasvið hans, vegna starfa á vegum ráðuneytis?
Nýtt ráðuneyti menningar- og viðskipta tók til starfa frá og með 1. febrúar 2022 og munu svörin því einungis miða við árið 2022. Fyrri ráðuneyti sem báru ábyrgð á málaflokkunum á árunum 2018–2021 munu svara fyrir þau ár.
Á árinu 2022 hafa utanlandsferðir ráðherra verið 7 talsins. Utanlandsferðir annarra starfsmanna á árinu 2022 voru 32 talsins.
2. Hve háar voru árlegar greiðslur dagpeninga vegna þessara ferða?
Á árinu 2022 voru greiddir dagpeningar að fjárhæð 700.806 kr. til ráðherra. Til annarra starfsmanna voru greiddir dagpeningar að fjárhæð 4.040.842 kr.
| Ráðherrar |
Aðrir | |
| 2022 | 700.806 kr. | 4.040.842 kr. |
3. Hversu oft á hverju ári fékk ráðherra 1/3 hluta dagpeninga og hve oft 2/3 hluta?
Á árinu 2022 fékk ráðherra greiddan daghluta almennra dagpeninga, til samræmis við reglur um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra frá 13. ágúst 2021.
4. Hverjar voru árlegar fjárhæðir vegna hótelgistingar ráðherra annars vegar og hins vegar annars ferðakostnaðar?
Á árinu 2022 voru greiddar 1.338.571 kr. vegna hótelgistingar ráðherra og 1.873.420 kr. vegna flugfargjalda.
| Hótel |
Flug | |
| 2022 | 1.338.571 kr. | 1.873.420 kr. |
5. Í hversu mörgum tilfellum hvert þessara ára var ráðherra ekið út á flugvöll í bifreiðum ráðuneytis og í hve mörgum tilfellum endurgreiddi ráðherra þann hluta dagpeninga sem ætlaður er til að standa undir þeim hluta ferðakostnaðarins?
Hefð hefur verið fyrir því að ráðherrum sé ekið út á flugvöll í ráðherrabifreiðum og er litið á það sem öryggismál. Í reglum fjármála- og efnahagsráðherra frá 13. ágúst 2021 um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra, skal ríkið leggja ráðherrum til bifreið til afnota vegna starfa sinna. Sú bifreið skal vera sérútbúin með öryggiskerfi og staðsetningarbúnaði. Bifreiðinni skal að jafnaði ekið af sérstökum bifreiðarstjóra sem sinnir jafnframt hlutverki öryggisvarðar hlutaðeigandi ráðherra. Í reglum um greiðslu ferðakostnaðar og önnur starfskjör ráðherra er ekki gert ráð fyrir breytingum á dagpeningum til ráðherra vegna þessara akstursráðstafana.
6. Hversu oft og hve háar voru árlegar endurgreiðslur ráðherra vegna styrkja og hvers konar hlunninda sem ráðherra naut erlendis og eiga samkvæmt reglum ferðakostnaðarnefndar að koma til frádráttar almennum dagpeningagreiðslum?
Almennt er ekki gerð krafa um að starfsmenn og þ.m.t. ráðherrar þurfi að gera grein fyrir þeim hlunnindum sem þeir njóta á ferðum erlendis. Á ferðalögum erlendis hefur ráðherra og annað starfsfólk ráðuneytisins ekki hlotið styrki.
7. Ef við á, hvenær komst hefð á að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda í ferðum ráðherra?
Sjá svar við 6. tölul. fyrirspurnar.
8. Ef við á, til hvaða aðgerða hefur verið gripið vegna ofgreiddra dagpeninga áður en farið var að leggja sérstakt mat á umfang hlunninda samkvæmt reglum um ferðakostnað og dagpeninga?
Sjá svar við 6. tölul. fyrirspurnar.