Ferill 560. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 742  —  560. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um skipulag og stofnanir ráðuneytisins.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Stendur yfir vinna í ráðuneytinu varðandi stofnanaskipulag þess með það að markmiði að ná fram aukinni hagræðingu og skilvirkni í starfsemi? Ef já, hvaða?
     2.      Hefur ráðherra brugðist við tillögum til úrbóta í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar frá desember 2021? Ef já, hvernig?
     3.      Hversu margar eru stofnanir ráðuneytisins?
     4.      Hversu margar stofnanir ráðuneytisins hafa færri en 50 starfsmenn?
     5.      Er til skoðunar að sameina stofnanir ráðuneytisins?
         

Skriflegt svar óskast.