Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 779 — 212. mál.
Leiðréttur texti.
3. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um landamæri.
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Við 2. umræðu um frumvarpið 23. nóvember sl. kallaði fulltrúi 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar eftir því að málinu yrði vísað aftur til nefndarinnar. Annars vegar var óskað eftir minnisblaði frá dómsmálaráðuneytinu með nánari útlistun á því hvaða ákvæði íslenska ríkinu væri skylt að taka upp vegna Schengen-samstarfsins og hver ekki, og hins vegar eftir rökstuddu mati á áhrifum innleiðingar þessara reglna með tilliti til stöðu fólks á flótta og möguleika þeirra til að leita verndar hér á landi.
Málið var til umfjöllunar í nefndinni 29. nóvember. Ekki var fallist á beiðni fulltrúa 1. minni hluta og málið afgreitt úr nefnd án þess að þessi atriði væru könnuð. Fulltrúi 1. minni hluta greiddi atkvæði gegn því að málið yrði afgreitt úr nefnd.
Fyrsti minni hluti leggst því gegn samþykkt málsins að svo stöddu og leggur til að því verði vísað til ríkisstjórnarinnar til frekari vinnslu svo að unnt verði að leggja raunverulegt mat á framangreinda þætti.
Alþingi, 12. desember 2022.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir.