Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 780 — 392. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um hjúkrunarfræðinga.
1. Hversu hátt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Íslandi starfar nú utan heilbrigðiskerfisins, en árið 2017 lá fyrir að 8% hjúkrunarfræðinga störfuðu utan heilbrigðiskerfisins, sbr. vinnumarkaðsskýrslu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga? Hefur þetta hlutfall haldist óbreytt, hækkað eða lækkað?
Upplýsingar um það hversu hátt hlutfall hjúkrunarfræðinga starfar nú utan heilbrigðiskerfisins liggja ekki fyrir.
2. Liggur fyrir sjálfstætt tölulegt mat af hálfu heilbrigðisráðuneytisins um hver þörfin er um fjölda starfandi hjúkrunarfræðinga hér á landi nú, á næstu árum og áratugum?
Hingað til hefur ekki legið fyrir sjálfstætt tölulegt mat af hálfu ráðuneytisins um hver þörfin er um fjölda starfandi hjúkrunarfræðinga nú og til framtíðar.
Landsráð um menntun og mönnun var stofnað í maí 2021. Hlutverk þess er að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana ráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði þvert á menntastofnanir, fagfélög, sjúklingasamtök og aðra hagsmunaaðila.
Í ráðuneytinu fer einnig fram vinna við umfangsmikla mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið sem mun hjálpa til við að kortleggja mönnunina nú og þörfina til framtíðar. Mönnunarþörf hjúkrunarfræðinga þarf að greina út frá fjölmörgum breytum. Meðal annars þarf að taka tillit til breyttrar aldursamsetningar samfélagsins, mannfjöldaþróunar, fjölda ferðamanna, fjármagns, verkefnis hverrar stofnunar og skipulags vinnunnar.
3. Hyggst ráðherra fara í markvissar aðgerðir til að vinna að því að hér verði starfandi fjöldi hjúkrunarfræðinga í samræmi við þörf? Ef svo er, hverjar eru þær aðgerðir sem ráðherra telur vænlegastar til að fjölga starfandi hjúkrunarfræðingum hérlendis?
Sjá svar við 2. tölul. fyrirspurnar. Fyrir utan hina umfangsmiklu mönnunargreiningu sem á sér nú stað innan ráðuneytisins þá var stofnun landsráðs um mönnun og menntun mikilvægur liður í því að tryggja að nægur fjöldi hæfs starfsfólks verði starfandi innan heilbrigðisþjónustunnar til framtíðar og menntun fullnægi þörfum hverju sinni. Frá stofnun landsráðs um mönnun og menntun heilbrigðisstétta hefur ráðið bæði skoðað mönnun einstakra heilbrigðisstétta um land allt auk þess að vinna að stærri tillögum, sem sumar hverjar eru nú þegar til skoðunar í ráðuneytinu.
Innan ráðuneytisins er einnig unnið að öðrum þáttum sem hafa mikil áhrif á mönnun hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstétta um allt land, eins og starfsumhverfi, endurnýjun tækja, nýsköpun, tæknivæðingu og eflingu fjarheilbrigðisþjónustu. Mikilvægt er að starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga sé eftirsóknarverður og kynntur þannig. Einnig þarf að huga að því að hækka hlutfall karlkyns hjúkrunarfræðinga.
Það er ekki eitt algilt hlutfall sem á að vera á mönnun milli heilbrigðisstétta, en mönnun hverrar heilbrigðisstéttar fyrir sig hefur áhrif á þann fjölda sem er nauðsynlegur í hinni stéttinni. Skipulag og starfsemi hverrar stofnunar eða einingar hefur einnig áhrif á mönnunarþarfirnar. Það er hlutverk hverrar stofnunar fyrir sig að tryggja að hæfni, menntun og reynsla hverrar starfsstéttar nýtist sem best og stuðla að teymisvinnu.
Ráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skiluðu sameiginlegu minnisblaði 20. september sl. til ríkistjórnarinnar, þar sem kynntar eru fimm forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar sem ráðuneytin hafa nú þegar haft samstarf um. Aðgerðirnar eru: 1) Fjölga sætum í sjö háskólagreinum (hjúkrunarfræði er ein þessara sjö greina) og efla nám á framhaldsskólastigi, 2) snjallvæðing kennsluhátta, öflugar færnibúðir og hermisetur, 3) bætt húsnæði, 4) sérfræðinám lækna á Íslandi eflt frekar, 5) bætt ferli vegna starfsleyfa.
Í ráðuneytinu er sú vinna langt komin að einfalda og skýra umsóknarferli umsækjenda frá ríkjum utan EES og Sviss um starfsleyfi sem heilbrigðisstarfsmenn hérlendis.
4. Telur ráðherra ástæðu til að fjölga nemendum í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri?
Já. Að því hefur markvisst verið unnið síðustu ár. Nemum í hjúkrunarfræði hefur verið fjölgað bæði við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands á undanförnum árum. Árið 2017 voru 175 námspláss í boði í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri en árið 2021 voru þau 215. Við Háskóla Íslands var sett á fót ný námsleið í hjúkrunarfræði fyrir fólk með aðra háskólagráðu og fyrstu nemendur útskrifuðust af þeirri námsleið í október sl.
Jafnframt hefur markvisst verið unnið að því að auka framboð á klínísku sérnámi í hjúkrunarfræði, m.a. sérnámi í heilsugæsluhjúkrun, gjörgæsluhjúkrun og geðhjúkrunarfræði.
Sjá einnig svar við 3. tölul. fyrirspurnar.
5. Liggur fyrir mat um það hversu marga hjúkrunarfræðinga ætti að útskrifa á ári hverju til að fullnægja þörfinni?
Nei. Slíkt mat liggur ekki fyrir en í ráðuneytinu fer nú fram vinna sem miðar að því að tryggja að ráðuneytið hafi heildstæða sýn á mönnun til framtíðar. Sjá svar við 2. tölul. fyrirspurnar.
6. Hver er skoðun ráðherra á því hvernig gera má Landspítalanum kleift að taka á móti fleiri nemendum í hjúkrunarfræði í klínískan hluta námsins en spítalinn hefur tök á við núverandi aðstæður?
Ráðuneytið hefur í samstarfi við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið lagt minnisblað fyrir ríkistjórn til upplýsingar (sjá svar við 3. tölul. fyrirspurnar) varðandi fimm forgangsaðgerðir í þágu heilbrigðismenntunar og snýst ein aðgerðin um snjallvæðingu kennsluhátta, öflugar færnibúðir og hermisetur. Getur slík ráðstöfun eflt klíníska kennslu.
Innan ráðuneytisins er horft til þess að sú aðstaða sem skapast þegar nýr Landspítali tekur til starfa muni skipta sköpum við móttöku nema. Þá hefur verið bent á þann möguleika að ákveðinn tími árs gæti verið vannýttur til klínískrar kennslu. Í því sambandi má nefna að verklegi hluti námsins í nýrri námsleið í hjúkrunarfræði fyrir fólk með annað háskólapróf fer að hluta til fram að sumarlagi.
Ráðuneytið telur auk þess ástæðu til að skoða frekar nýtingu á fleiri heilbrigðisstofnunum á höfuðborgarsvæðinu og um land allt hvað snertir klíníska kennslu og hvernig best væri að standa að því. Einn þáttur hvað það varðar er að efla færni heilbrigðisstarfsfólks um allt land til að sinna klínískri kennslu, m.a. með aðgengi að námskeiðum og endurmenntun.
7. Hver er staða heilbrigðisstofnana utan höfuðborgarsvæðisins hvað varðar skort á hjúkrunarfræðingum til starfa?
Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og Sjúkrahúsinu á Akureyri er staðan samkvæmt þeirra eigin mönnunarmódeli, eða heimiluðum stöðugildum á hverri stofnun, að vöntun á hjúkrunarfræðingum er mismikil á hverri stofnun. Ómönnuð stöðugildi hjúkrunarfræðinga í heild fyrir hverja heilbrigðisstofnun eru allt frá 0,3 til 9,57. Vöntun á hjúkrunarfræðingum er mismikil eftir sviðum og deildum og sumar einingar eru fullmannaðar. Þar sem um undirmönnun er að ræða þá er hvert tilfelli skoðað hverju sinni, svo sem með tímabundinni afleysingu, yfirvinnu, forgangsröðun og tilfærslu verkefna.
8. Liggur fyrir mat á vænlegum aðgerðum sem hægt er að ráðast í af hálfu stjórnvalda til að fá hjúkrunarfræðinga, sem starfa ekki við hjúkrun í dag, aftur til starfa?
Eins og vikið hefur verið að í fyrri svörum er mönnun hjúkrunarfræðinga og annars heilbrigðisstarfsfólks áskorun og margvísleg vinna á sér nú stað til þess að mæta framtíðarþörfum þjóðfélagsins.
Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga hefur mikið að segja, eins og vikið var að í svari við 3. tölul. fyrirspurnar, og eru umbætur þess viðvarandi verkefni. Uppbygging og endurbætur á húsnæði vega þungt, ásamt endurnýjun tækja, nýsköpun, tæknivæðingu og eflingu vísinda og kennslu.
Réttarstaða heilbrigðisstarfsfólks vegna alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu hefur m.a. mikið verið til umræðu og hvílir þungt á mörgu heilbrigðisstarfsfólki. Hvað það snertir vinnur starfshópur skipaður af heilbrigðisráðherra að tillögum að breytingum á rannsókn alvarlegra óvæntra atvika í heilbrigðisþjónustu og að sett verði inn í lög ákvæði um „cumulativa“ og hlutlæga refsiábyrgð heilbrigðisstofnana. Áform um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, er varða refsiábyrgð heilbrigðisstofnana og rannsókn óvæntra atvika voru kynnt og lágu fyrir til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í ágúst sl.
9. Hyggst ráðherra láta fara fram mat á því hvert sé ákjósanlegt starfsálag hjá hjúkrunarfræðingum, t.d. að skilgreindur verði hámarksfjöldi sjúklinga á hvern hjúkrunarfræðing?
Vísað er til þeirrar greiningarvinnu sem stendur yfir í ráðuneytinu, sbr. svar við 2. tölul. fyrirspurnar. Í framhaldi af þeirri vinnu verður hægt að taka stefnumótandi ákvarðanir út frá tölum og greiningum.