Ferill 307. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 785  —  307. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þórunni Sveinbjarnardóttur um sjúkraliða.


     1.      Hve mörg stöðugildi sjúkraliða voru á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri árin 2016 og 2021?
    Árið 2016 var fjöldi stöðugilda á Landspítalanum 439,5 og 34,7 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 var fjöldi stöðugilda á Landspítalanum 436,1 og 51,1 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

     2.      Hversu margir sjúkraliðar mönnuðu þessi stöðugildi?
    Árið 2016 var fjöldi sjúkraliða á Landspítalanum 790 og 67 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Árið 2021 var fjöldi sjúkraliða á Landspítalanum 789 og 90 á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

     3.      Hve mörg stöðugildi sjúkraliða voru á heilsugæslustöðvum eftir heilbrigðisumdæmum árin 2016 og 2021?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda stöðugilda sjúkraliða eftir heilbrigðisumdæmum fyrir árin 2016 og 2021.

Sjúkraliðar
Stofnun

2016
Stöðugildi

2021
Stöðugildi
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 56,7 59,9
Einkareknar heilsugæslur 0 0
Reykjavíkurborg 70,03 66,93
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 6,75 13,06
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 31,03 28,85
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 14,8 25,1
Heilbrigðisstofnun Austurlands 8,15 12,17
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 46,6 53,5
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 9,3 12,6
Stöðugildi sjúkraliða alls 243,36 272,11

     4.      Hversu margir sjúkraliðar mönnuðu þessi stöðugildi?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda starfandi sjúkraliða á heilsugæslum eftir heilbrigðisumdæmum:

Sjúkraliðar
Stofnun
2016
Fjöldi starfsmanna
2021
Fjöldi starfsmanna
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins 102 117
Einkareknar heilsugæslur 0 0
Reykjavíkurborg 117 122
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 11 20
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 45 41
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 22 34
Heilbrigðisstofnun Austurlands 15 20
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 96 96
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 21 28
Sjúkraliðar alls 429 478

     5.      Hefur ráðuneytið sett viðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum?
    Nei, ráðuneytið hefur ekki sett viðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum.
    Landsráð um menntun og mönnun var stofnað í maí 2021. Hlutverk þess er að vera ráðgefandi fyrir undirbúning ákvarðana heilbrigðisráðherra á sviði mönnunar og menntunar í heilbrigðisþjónustu, auk þess að vera samráðsvettvangur á þessu sviði þvert á menntastofnanir, fagfélög, sjúklingasamtök og aðra hagsmunaaðila.
    Í heilbrigðisráðuneytinu fer einnig fram vinna við umfangsmikla mönnunargreiningu þvert á heilbrigðiskerfið sem mun hjálpa okkur við að kortleggja mönnunina í dag og þörfina til framtíðar. Mönnunarþörf sjúkraliða þarf að greina út frá fjölmörgum breytum, m.a. þarf að taka tillit til breyttrar aldurssamsetningar samfélagsins, mannfjöldaþróunar, fjölda ferðamanna, fjármagns, verkefnis hverrar stofnunar og skipulags vinnunnar.

     6.      Hvert er lágmarksviðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum?
    Ráðuneytið hefur ekki sett lágmarksviðmið um mönnun sjúkraliða á heilbrigðisstofnunum, sbr. svar við 5. tölul. fyrirspurnar.
    Það er ekki einhlítt svar við því hvert rétt mönnunarviðmið er. Almennt er það skilgreint út frá starfsemi hverrar einingar eða deildar. Einingin getur verið heilsugæsla, mismunandi deildir sjúkrahúsa, hjúkrunardeildir eða hjúkrunarheimili. Það getur líka verið mikill breytileiki í umfangi starfsemi hverrar einingar. Taka þarf tillit til stærðar, íbúafjölda á hverjum stað, samsetningu innbyrðis, eins og aldursdreifingu íbúa, auk sveiflna í þörf fyrir þjónustu, s.s. tengt ferðaþjónustu. Við skipulag mönnunar horfa stofnanir einnig til fjárveitinga eða fjárheimilda og aðgengis að starfsfólki. Þannig getur verið munur á skipulagi mönnunar heilbrigðisstarfsfólks eftir landsvæðum.
    Á hjúkrunarheimilum hefur embætti landlæknis í eftirliti sínu og úttektum tekið mið af viðmiðum sem skilgreind eru í skýrslunni Viðmið um mönnun á hjúkrunarheimilum skilgreind, 2. útg. 2015. Í sumum tilfellum er þar stuðst við áætlaðar umönnunarklukkustundir íbúa á sólahring. Umræða hefur verið til staðar um að þörf sé á að endurskoða þessi viðmið.
    Við rekstur heilsugæslustöðva á landsbyggðinni er til viðmiðunar Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á landsbyggðinni, útg. 2022 (september). Almennt byggjast greiðslur til stöðvanna á fjölda skráðum á stöðina, lýðfræðilegri samsetningu og einkennum. Tekið er mið af aldri, kyni, mældri sjúkdómsbyrði, félagslegum aðstæðum einstaklinga, mældum þjónustuþáttum o.s.frv. Þegar um er að ræða minnstu stöðvarnar á landsbyggðinni er greitt sérstakt smæðarálag. Við rekstur heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er til viðmiðunar Fjármögnunarlíkan heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu, útg. 2022 (september).
    Landspítalinn skilgreinir ekki lágmarksviðmið um mönnun sjúkraliða, heldur miðar við fjármögnuð stöðugildi sem lágmarksstöðugildi. Þá notar Landspítalinn hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfið RAFAELA til að fylgjast með jafnvægi á milli hjúkrunarþarfar sjúklinga og mönnunar við hjúkrun sjúklinga. Nú er kerfið notað á 22 deildum spítalans og innleiðing stendur yfir á sjö deildum til viðbótar. Hvað snertir starfsemi rannsóknarþjónustu Landspítala er horft til skilgreindra öryggisviðmiða. Landspítalinn er einnig að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar út frá sinni starfsemi.
    Viðmið Sjúkrahússins á Akureyri hafa miðast við fjárheimildir og hvernig aðgengi er að starfsfólki. Sjúkrahúsið er að hefja það verkefni að greina betur eigin viðmið mönnunar og mun byggja á þeim gögnum sem sjúkrahúsið hefur, s.s. hjúkrunarþyngdarflokkunarkerfinu RAFAELA og viðmiðum um fjölda legurýma.
    Að lokum má nefna að allar stofnanirnar eru með svokallaða verkfallslista sem sendir eru til stéttarfélaga. Slíkir listar eru hugsaðir sem öryggislistar þar sem skilgreind er lágmarksmönnun til að halda starfseminni gangandi til skemmri tíma.

     7.      Getur ráðuneytið upplýst um meðalaldur og kynjaskiptingu í stétt sjúkraliða hér á landi?
    Samkvæmt Sjúkraliðafélagi Íslands er meðalaldur í stétt sjúkraliða 48 ár. Hlutfall karla og kvenna í stétt sjúkraliða skiptist þannig að 3% eru karlar og 97% konur. Ekki liggja fyrir upplýsingar um önnur kyn.

     8.      Hversu mörg leggja stund á nám á sjúkraliðabrautum í framhaldsskólum (206 fein.)?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda nemenda á sjúkraliðabrautum við framhaldsskóla landsins haustið 2022, alls 594 nemendur. Fjöldi nemenda kann að vera meiri þar sem hluti nemenda er að safna áföngum á fjarnámsbraut en hefur ekki skráð sig í formlegt sjúkraliðanám.

Skóli Sjúkraliðabraut
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 91
Fjölbrautaskóli Vesturlands 57
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 217
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 86
Fjölbrautaskóli Suðurlands 11
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 29
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 19
Menntaskólinn á Ísafirði 19
Verkmenntaskóli Austurlands 22
Verkmenntaskólinn á Akureyri 43
Alls 594

     9.      Hversu mörg stunda nám á sjúkraliðabrú (145 fein.)?
    Eftirfarandi tafla sýnir fjölda nemenda sem stunda nám á sjúkraliðabrú. Ekki allir framhaldsskólar bjóða upp á þessa námsleið. Heildarfjöldi nemenda á sjúkraliðabrú er 112.

Skóli Sjúkraliðabrú
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 11
Fjölbrautaskóli Suðurlands 0
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 39
Verkmenntaskólinn á Akureyri Ekki í boði
Fjölbrautaskóli Vesturlands 0
Verkmenntaskóli Austurlands 11
Menntaskólinn á Ísafirði 3
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 31
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 17
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 0
Alls 112