Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 805  —  429. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (aldursfriðun húsa og mannvirkja).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Dagnýju Arnarsdóttur og Hafstein S. Hafsteinsson frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Kristínu Rut Sigurðardóttur, Pétur Ármannsson, Gísla Óskarsson og Þór Hjaltalín frá Minjastofnun Íslands, Guðjón Bragason frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ernu Hrönn Geirsdóttur frá Reykjavíkurborg og Guðnýju Gerði Gunnarsdóttur frá Íslandsdeild ICOMOS. Umsagnir bárust frá Félagi fornleifafræðinga, Íslandsdeild ICOMOS, Minjastofnun Íslands, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þá barst minnisblað frá umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á svokallaðri 100 ára reglu er varðar aldursfriðun húsa og mannvirkja. Breytingin felur í sér að í stað þess að hús og mannvirki sem eru 100 ára og eldri verði friðuð eigi friðun við um hús sem byggð voru árið 1923 eða fyrr. Samkvæmt lögunum er óheimilt að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands. Lagt er til að bætt verði við þetta ákvæði heimild til handa Minjastofnun til að setja skilyrði um framkvæmdir af þessu tagi eða gera tillögu um friðlýsingu umrædds húss eða mannvirkis.
    Í 30. gr. laganna er kveðið á um að eigendum húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1925 eða fyrr sé skylt að leita álits hjá Minjastofnun með minnst sex vikna fyrirvara ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Með frumvarpinu er lagt til að viðmiðunarártali fyrir þessa umsagnarskyldu verði breytt þannig að ákvæðið eigi við um hús sem byggð voru 1930 eða fyrr.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Í umsögnum um málið koma fram þau sjónarmið að miða ætti aldursfriðun húsa og mannvirkja við þau sem byggð voru árið 1918 eða fyrr líkt og á við um aldursfriðun kirkna og var í eldri lögum um húsafriðun. Þá var þar einnig sett fram tillaga um að miða mætti við árið 1915. Meiri hluti nefndarinnar áréttar að brýnt er að skoða aldursmörk friðunar húsa í heildarendurskoðun laga um menningarminjar. Þá telur meiri hlutinn ekki rétt að færa tímamarkið aftar og aflétta þar með friðun húsa sem geta haft menningarsögulegt gildi fyrr en að lokinni ítarlegri skoðun og greiningu.
    Fyrir nefndinni komu fram ýmis sjónarmið um það við hvaða tímamark ætti að miða umsagnarskyldu Minjastofnunar. Í frumvarpinu er lagt til að umsagnarskyldan eigi við um hús sem byggð voru 1930 eða fyrr en umsagnaraðilar bentu t.d. á að miða mætti það við hús sem byggð voru 1940 eða fyrr eða 1945 við lok síðari heimsstyrjaldarinnar enda hefðu þá orðið miklar breytingar sem höfðu áhrif á byggingararf þjóðarinnar. Þá kom einnig fram ánægja með að miðað yrði við 1930 enda hafi þá lokið miklu og glæsilegu uppbyggingarskeiði sem oft er kennt við steinsteypuklassík. Meiri hluti nefndarinnar leggur ekki til breytingar á ákvæðinu en áréttar mikilvægi þess að þetta atriði verði skoðað í tengslum við boðaða heildarendurskoðun laganna.
    Þá var nefndinni bent á að líta mæti til þess að breyta viðmiðum við friðun fornminja sem að óbreyttu fjölgaði með hverju árinu. Ákjósanlegt væri að samræma aldursfriðun húsa og mannvirkja annars vegar og fornleifa hins vegar. Telur meiri hluti nefndarinnar rétt að þetta verði einnig skoðað við endurskoðun laganna.
    Á fundi með fulltrúum sveitarfélaga og í umsögnum þeirra um málið kom fram að ein megináherslan í rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023–2032 er að auka fyrirsjáanleika verkefna um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Mikilvægur liður í því er að samþætta ferla við gerð skipulags og veitingu byggingarleyfa, með það að markmiði að stytta framkvæmdatíma og lækka byggingarkostnað. Meiri hluti nefndarinnar tekur undir ábendingar fulltrúa sveitarfélaga um að mikilvægt sé að farið verði sérstaklega yfir samskipti Minjastofnunar og sveitarfélaga í þeirri vinnu, koma á skilvirkara verklagi þar sem þörf er á og setja leiðbeiningar til að fækka hugsanlegum flöskuhálsum við undirbúning framkvæmda.
    Ljóst er að ef 100 ára friðunarreglan stendur óhögguð fjölgar á hverju ári friðuðum húsum. Eins og fram kemur í greinargerð eykur fágæti varðveislugildi minja en hið gagnstæða dregur úr því. Mikilvægt er að fagleg rök séu til grundvallar vernd og friðun og telur nefndin brýnt að áhersla verði lögð á að tryggja friðun húsa, mannvirkja og fornminja með hátt varðveislugildi sem sannarlega þarf að vernda. Meiri hluti nefndarinnar telur því mikilvægt að frumvarpið verði að lögum en leggur jafnframt áherslu á að endurskoðun laganna verði hraðað og í þeirri vinnu verði litið til þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið í samráðsferli ráðuneytis og við meðferð málsins hjá nefndinni, m.a. þeirra sem rakin eru í áliti þessu.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Sigmar Guðmundsson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur álitinu.

Alþingi, 13. desember 2022.

Bryndís Haraldsdóttir,
form.
Birgir Þórarinsson,
frsm.
Helga Vala Helgadóttir.
Jóhann Friðrik Friðriksson. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Lilja Rafney Magnúsdóttir.