Ferill 577. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 808 — 577. mál.
Flutningsmenn, leiðréttur texti.
Tillaga til þingsályktunar
um skipun nefndar til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi mannréttindakafla stjórnarskrárinnar.
Flm.: Arnar Þór Jónsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Vilhjálmur Árnason, Óli Björn Kárason.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn Íslands að skipa nefnd þriggja óháðra sérfræðinga til að greina sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldri kórónuveirunnar í ljósi 67., 71. og 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Nefndin skili skýrslu sinni eigi síðar en á haustþingi 2023.
Greinargerð.
Skýrslu nefndarinnar skal skilað eigi síðar en á haustþingi 2023 og verður hún kynnt Alþingi eins fljótt og kostur er. Í skipunarbréfi nefndarinnar verður meginverkefni hennar skýrt sem greining á lögmæti sóttvarnaaðgerða í ljósi mannréttindaákvæða stjórnarskrár. Þannig verður nefndinni m.a. falið að greina hvort sóttvarnaaðgerðir byggðar á 12. gr. sóttvarnalaga hafi staðist kröfur stjórnarskrárinnar um lögmæti slíkra aðgerða, hvort þar til bærir aðilar hafi í reynd farið með ákvörðunarvald um sóttvarnaaðgerðir í faraldrinum og togstreita milli sóttvarnaaðgerða og stjórnarskrárvarinna mannréttinda greind nánar. Nefndinni verður einnig falið að útlista tillögur um skýrari mælikvarða og nauðsynlega virkjun lýðræðislegra öryggisventla við takmörkun á frelsi fólks til friðhelgi einkalífs og atvinnu í þágu almannahagsmuna.
Sóttvarnaaðgerðum á grundvelli 12. gr. sóttvarnalaga í heimsfaraldri kórónuveirunnar var beitt til verndar lífi og heilsu almennings. Tilefni þingsályktunartillögu þessarar er að fá greiningu á þeim afleiðingum sem sóttvarnaaðgerðir í kórónuveirufaraldrinum höfðu á önnur mannréttindi íbúa landsins, þ.m.t. ferða-, funda- og tjáningarfrelsi. Mikilvægt er að stjórnvöld gangi ekki lengra en nauðsyn krefur þegar skerða þarf frelsi almennings í þágu almannahagsmuna. Því er nauðsynlegt að greint verði hvernig gætt var að undirstöðum stjórnskipunarinnar um valddreifingu, valdtemprun, meðalhóf o.fl. Til að tryggja að draga megi lærdóm af faraldrinum er rétt að greining verði gerð á stjórnskipulegu gildi sóttvarnaaðgerða, líkt og gerð var greining á áfallastjórnun stjórnvalda vegna faraldursins af völdum COVID-19. Mikilvægt er að stjórnskipuleg mörk sóttvarnalaga verði skýrð til hlítar sem og lagagrundvöllur valdheimilda ráðherra og annarra stjórnvalda. Þá er rétt að skoðað verði hvaða kröfur stjórnarskráin geri um aðkomu Alþingis að setningu íþyngjandi reglna eða aðgerða. Leggja ber mat á hvort áðurnefnd veiking þingræðis á því tímabili sem hér um ræðir hafi veikt samstillingarhlutverk stjórnmálanna og beint stefnumálum í of þröngan farveg án þess að lagt hafi verið málefnalegt og heildrænt mat á þær fórnir sem réttlætanlegt hafi verið að færa vegna sjúkdómsins annars vegar og annarra þátta, svo sem atvinnulífs, hins vegar. Greina ber hvort vald hafi í of ríkum mæli verið framselt til sérfræðinga og embættismanna á því tímabili sem hér um ræðir. Jafnframt verði í þessu samhengi skilmerkilega dregið fram hvaða takmörk stjórnarskráin setji valdheimildum framkvæmdarvaldsins.