Ferill 167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 865  —  167. mál.
3. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um leigubifreiðaakstur.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur, Höllu Signýju Kristjánsdóttur og Andrési Inga Jónssyni.


    Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Lög þessi skulu sæta endurskoðun með tilliti til reynslu af þeim breytingum á regluumhverfi leigubifreiða sem lögin fela í sér. Hefja skal endurskoðun laganna eigi síðar en 1. janúar 2025.