Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 866 — 455. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um áskrift að dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum.
1. Hvaða dagblöðum, tímaritum og öðrum miðlum eru ráðuneytið og stofnanir og aðrir aðilar sem heyra undir það í áskrift að?
2. Hversu margar áskriftir eru að hverjum miðli?
3. Hver er heildarfjárhæð áskriftar á ári fyrir hvern miðil?
Svar við fyrirspurninni er tekið saman í eftirfarandi töflu. Fjöldi áskrifta og heildarkostnaður miðast við árið 2021. Um er að ræða svör frá viðkomandi stofnunum sem ráðuneytið hafði milligöngu um að afla. Ráðuneytið hefur ekki skýringar á mismunandi verði áskrifta hjá stofnunum. Það kann að vera vegna breytinga á fjölda eintaka yfir árið en ekki var leitað sérstaklega eftir upplýsingum um það. Fjársýsla ríkisins er ekki með neinar áskriftir.
Fjöldi áskrifta | Heildarkostnaður | Athugasemdir |
|
Bankasýsla ríkisins | |||
Morgunblaðið | 1 | 104.863 | |
Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Frjáls verslun | 1 | 55.500 | |
DV | 1 | 11.960 | Áskrift sagt upp á árinu 2021 |
Keldan | 1 | 6.076 | |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti | |||
Economist | 5 | 144.232 | |
Financial Times | 5 | 158.656 | |
Úlfljótur | 1 | 5.500 | |
Tímarit lögfræðinga | 1 | 7.937 | |
Túristi | 1 | 20.193 | Áskrift sagt upp um áramót |
Fons Juris | 1 | 419.256 | |
Creditinfo Fjölmiðlavakt | 1 | 1.071.428 | |
Morgunblaðið ásamt gagnasafni | 1 | 323.793 | |
Fréttablaðið | 1 | 59.900 | |
Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Frjáls verslun | 2 | 119.880 | |
Stundin | 1 | 29.880 | |
Bændablaðið | 1 | 11.600 | |
Vísbending | 1 | 75.600 | |
DV | 1 | 8.970 | Áskrift sagt upp í apríl 2021 |
Framkvæmdasýslan Ríkiseignir | |||
Morgunblaðið, rafræn áskrift | 1 | 60.248 | |
Viðskiptablaðið | 1 | 20.045 | |
Skatturinn | |||
Morgunblaðið ásamt gagnasafni | 5 | 501.503 | |
Bændablaðið | 2 | 23.200 | |
Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Frjáls verslun | 3 | 171.800 | |
Skessuhorn | 1 | 46.237 | |
DV | 1 | 8.970 | Áskrift sagt upp í mars 2021 |
Stundin | 2 | 41.820 | |
Sjónvarp Símans | 2 | 165.197 | |
Stöð 2 | 2 | 479.760 | |
Ríkiskaup | |||
Morgunblaðið | 1 | 95.784 | |
Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Frjáls verslun | 1 | 59.940 | |
Úlfljótur | 1 | 5.500 | |
Yfirskattanefnd | |||
Viðskiptablaðið | 1 | 46.620 | |
Lögbirtingablað | 1 | 3.000 | |
Úlfljótur, tímarit laganema | 1 | 5.500 | |
Tímarit lögfræðinga | 1 | 7.937 | |
Sveitarstjórnarmál | 1 | 4.400 |