Ferill 697. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1069  —  697. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um bið eftir þjónustu transteyma.

Frá Andrési Inga Jónssyni.

     1.      Hver telur ráðherra að sé ásættanlegur biðtími eftir því að komast í þjónustu transteymis barna og unglinga annars vegar og transteymis fullorðinna hins vegar?
     2.      Hverjar eru helstu ástæður þess að biðtíminn er jafn langur og raun ber vitni? Til hvaða ráða hefur verið gripið til að stytta hann og hvaða aðgerðir eru áformaðar?
     3.      Hvaða þjónusta, eins og t.a.m. niðurgreidd sálfræðiþjónusta eða aðgengi að geðlæknum, stendur fólki til boða meðan það bíður eftir því að komast að hjá transteymum?