Ferill 571. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1073  —  571. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um verðupplýsingar tryggingafélaga.


     1.      Hvaða reglur gilda um upplýsingaskyldu fyrirtækja um verð á vöru og þjónustu og hvaða viðurlög eru við brotum á þeim reglum?
    Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, nr. 57/2005, með síðari breytingum (markaðssetningarlög), eru almenn lög sem taka til hvers konar atvinnustarfsemi, svo sem framleiðslu, verslunar og þjónustu.
    Ákvæði 8.–11. gr., sbr. 5. gr. laganna, fjalla um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum og geta eftir atvikum tekið til upplýsingagjafar fyrirtækja um verð vöru og þjónustu.
    Í 17. gr. sömu laga segir að fyrirtæki, sem selur vörur eða þjónustu til neytenda, skuli merkja vöru sína og þjónustu með verði eða sýna það á svo áberandi hátt á sölustaðnum að auðvelt sé fyrir neytendur að sjá það. Neytendastofa getur á grundvelli greinarinnar sett nánari ákvæði um verðmerkingar með opinberri tilkynningu.
    Í 18. gr. laganna segir að Neytendastofa geti gefið fyrirtækjum sérstök fyrirmæli um að gera ráðstafanir til að auðvelda viðskiptavinum að meta verð og gæði. Fyrirmælin geta falist í skyldu til að tilgreina verð, viðskiptakjör, gæði og aðra eiginleika og hvernig vara skal mæld, vegin og flokkuð. Neytendastofa getur á grundvelli greinarinnar gefið slík fyrirmæli með opinberri tilkynningu.
    Reglur sem settar hafa verið með stoð í 17. og 18. gr. laganna og varða með einum eða öðrum hætti upplýsingagjöf um verð vara og þjónustu eru eftirfarandi:
     1.      Reglur nr. 1212/2020 um verðmerkingar og verðsamanburð á orkugjöfum fyrir bifreiðar.
     2.      Reglur nr. 537/2011 um verðupplýsingar við sölu á þjónustu.
     3.      Reglur nr. 536/2011 um verðmerkingar og einingarverð við sölu á vörum.
     4.      Reglur nr. 366/2008 um útsölur og aðra sölu þar sem selt er á lækkuðu verði.
     5.      Reglur nr. 384/2007 um sundurliðun á verði lyfja sem seld eru gegn lyfseðli.
     6.      Reglur nr. 383/2007 um verðupplýsingar á þjónustu tannlækna.
    Neytendastofa getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem brjóta gegn ákvæðum laganna og reglum settum samkvæmt þeim um bann við óréttmætum viðskiptaháttum, sbr. II.–V. kafla laganna, stjórnvaldsreglum og ákvörðunum Neytendastofu gegn viðskiptaháttum sem brjóta í bága við ákvæði II.–VIII. kafla laganna og fyrirmælum Neytendastofu, sbr. 21. gr. b laganna, og reglum og fyrirmælum Neytendastofu um ráðstafanir til að auðvelda viðskiptavinum að meta verð og gæði, sbr. 18. gr. Sektir geta numið allt að 10 millj. kr.
    Eftir atvikum gilda ákvæði 3. mgr. 6. gr. laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002, með síðari breytingum (lög um rafræn viðskipti), um upplýsingagjöf fyrirtækja um verð rafrænnar þjónustu. Þar segir að ef verð er gefið upp í tengslum við rafræna þjónustu skuli það gert með skýrum og ótvíræðum hætti. Þegar rafrænni þjónustu er eingöngu beint að íslenskum neytendum skulu skattar innifaldir í verði. Ef brotið er gegn ákvæði 3. mgr. 6. gr. gilda ákvæði markaðssetningarlaganna um úrræði Neytendastofu, stjórnvaldssektir og málsmeðferð.
    Auk framangreinds hafa lög um neytendasamninga, nr. 16/2016, með síðari breytingum, að geyma ákvæði um upplýsingagjöf um verð vöru eða þjónustu fyrir samningsgerð, sbr. c-lið 1. mgr. 4. gr. og d-lið 1. mgr. 5. gr. laganna. Neytendastofa getur skv. 1. mgr. 29. gr. laganna lagt stjórnvaldssektir á aðila sem brýtur gegn ákvæðum þeirra, og eftir atvikum reglum settum á grundvelli þeirra, eða ákvörðunum Neytendastofu. Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á aðila geta numið 100 þús. kr. til 10 millj. kr. Lögin gilda hins vegar ekki um vátryggingarsamninga, sbr. b-lið 3. mgr. 1. gr. þeirra.

     2.      Eru tryggingafélög undanþegin þeim reglum sem gilda um upplýsingaskyldu um verð á vöru og þjónustu? Ef ekki, hvers vegna hafa stjórnvöld þá ekki brugðist við því að tryggingafélög skuli almennt ekki birta verð á tryggingum?
    Atvinnustarfsemi vátryggingafélaga er ekki undanþegin ákvæðum markaðssetningarlaganna að því er varðar upplýsingagjöf um vöru og þjónustu. Eftir því sem við á geta lög um rafræn viðskipti einnig átt við um atvinnustarfsemi þeirra.
    Neytendastofa hefur tekið til meðferðar nokkur mál er varða viðskiptahætti og markaðssetningu tryggingafélaga. Neytendastofa hefur nú til meðferðar mál er varða og verðupplýsingar á vefsíðum tryggingafélaga.
    Neytendastofa getur lokið máli eftir sáttaumleitan eða tekið ákvörðun skv. IX. kafla laganna, sbr. 21. gr. b laganna.
    Samkvæmt 4. gr. reglna nr. 1066/2021 um málsmeðferð Neytendastofu birtir Neytendastofa ákvarðanir og önnur málalok sem hafa almenna þýðingu eða skipta máli fyrir túlkun laga sem Neytendastofa hefur eftirlit með.

     3.      Telur ráðherra það til þess fallið að stuðla að samkeppni á tryggingamarkaði ef tryggingafélög birta ekki verð á tryggingum?
    Aðgangur að fullnægjandi upplýsingum um verð fyrirtækja á vöru og þjónustu er í mörgum tilfellum til þess fallinn að auka aðhald á neytendamörkuðum. Að sama skapi getur ógagnsæi um verð latt viðskiptavini til að gera samanburð á verði mismunandi þjónustuveitenda. Eftirlit með gagnsæi markaðarins í þágu neytenda getur því oft stuðlað að virkri samkeppni.
    Við mat á þessu verður þó að hafa í huga að á fákeppnismörkuðum er meiri hætta á því að svonefnd þögul samhæfing komist á milli þjónustuveitenda þegar mikið gagnsæi ríkir um verð. Á þetta einkum við um einsleitar vörur, þ.e. ef lítill eða hverfandi munur er á vörum mismunandi þjónustuveitenda á viðkomandi markaði. Við aðstæður þar sem þögul samhæfing er möguleg getur það leitt getur til þess að keppinautar haldi uppi óeðlilega háu verði á markaðnum án þess að eiga bein samskipti sín á milli. Leggja þarf á það mat með hliðsjón af aðstæðum á hverjum markaði fyrir sig hvort gagnsæi um verð eykur eða dregur úr samkeppni.

     4.      Telur ráðherra þurfa að gera breytingar á gildandi lögum eða reglum til að knýja á um að tryggingafélög birti verð á tryggingum? Ef svo er, hvaða breytingar þyrfti að gera? Ef svo er ekki, hyggst ráðherra þá beita sér fyrir því að gildandi lögum og reglum um upplýsingaskyldu um verð á vöru og þjónustu verði framfylgt í því skyni að knýja tryggingafélög til að birta verð á tryggingum og hvernig?
    Að svo stöddu eru ekki fyrirhugaðar breytingar á lögum sem kveða á um birtingu verðs á tryggingum. Það er hlutverk Neytendastofu að fylgjast með framkvæmd gildandi reglna um upplýsingar um verð vöru og þjónustu, þ.m.t. vátrygginga. Þá er það Samkeppniseftirlitsins að taka afstöðu til mögulegra samkeppnishindrana á vátryggingamarkaði. Eftir því sem við á geta stofnanirnar átt samráð um eftirlitsaðgerðir á mismunandi mörkuðum í þágu neytendaverndar og virkrar samkeppni.

     5.      Telur ráðherra það samræmast samkeppnislögum ef tryggingafélag setur það sem skilyrði fyrir því að neytandi fái tilboð í tryggingar sínar að hann veiti upplýsingar um verð þeirra trygginga sem hann hefur fyrir hjá öðru tryggingafélagi? Ef ekki, hyggst ráðherra þá beita sér fyrir því að samkeppnislögum verði framfylgt í því skyni að stöðva slíka háttsemi og hvernig?
    Núverandi viðskiptafyrirkomulag á tryggingamarkaði felur í sér tvíhliða samninga milli tryggingataka og tryggingafélags um kaup á tryggingum þar sem verð er sérstaklega sniðið að viðkomandi viðskiptavini. Ýmsir persónubundnir þættir geta haft áhrif á tryggingar hvers og eins einstaklings. Út frá samkeppnissjónarmiði gæti það ekki talist hagfellt að tryggingafélag fái upplýsingar um það hvaða verð viðkomandi viðskiptavinur hefur samið um eða getur samið um við aðra keppinauta. Í því gæti falist upplýsingamiðlun milli keppinauta, fyrir milligöngu viðskiptavinar, sem auðveldað getur skaðlega þegjandi samhæfingu milli vátryggingafélaga. Að öðru leyti er það Samkeppniseftirlitsins, sem er sjálfstæð stofnun, að taka afstöðu til álitaefna af þessu tagi. Hægt er að beina kvörtunum og ábendingum til Samkeppniseftirlitsins.
    Að öðru leyti er bent á að fjármála- og efnahagsráðuneyti fer með mál er varða vátryggingar og vátryggingastarfsemi, dreifingu vátrygginga og vátryggingasamstæður, sbr. q-, s- og z-lið 8. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, nr. 6/2022.