Ferill 730. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1106  —  730. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á sköttum og gjöldum frá ársbyrjun 2018.

Frá Dagbjörtu Hákonardóttur.


     1.      Hvaða skattar og gjöld hækkuðu frá og með ársbyrjun 2018 til ársloka 2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, með upplýsingum um árlegar tekjur af hverri hækkun um sig og aðgerðir vegna COVID-19 skulu tilgreindar sérstaklega.
     2.      Hvaða skattar og gjöld lækkuðu frá og með ársbyrjun 2018 til ársloka 2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, með upplýsingum um árlegan kostnað af hverri lækkun um sig og aðgerðir vegna COVID-19 skulu tilgreindar sérstaklega.


Skriflegt svar óskast.