Ferill 618. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1124  —  618. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Helgu Völu Helgadóttur um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn ráðuneyta.


     1.      Hvert geta starfsmenn heilbrigðisráðuneytis leitað sem telja sig verða fyrir vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra, svo sem einelti og áreitni eða annars konar ofbeldi?
    Í gildi er stefna, forvarna- og viðbragðsáætlun Stjórnarráðsins vegna EKKO (einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni, ofbeldi), frá 16. júní 2022. Markmiðið með stefnunni er að tryggja að úrræði séu til staðar og stuðla að forvörnum og verkferlum í samræmi við ákvæði laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og reglugerð nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn EKKO á vinnustöðum. Ekki er þar að finna skilgreiningu á orðunum „vanvirðandi háttsemi“ sem vísað er til í fyrirspurninni. Samkvæmt reglugerðinni er bæði atvinnurekanda og starfsmönnum óheimilt að leggja starfsmenn í einelti á vinnustað, áreita þá kynferðislega, sem og á grundvelli kyns, eða beita þá ofbeldi.
    Í viðbragðsáætlun stefnunnar segir m.a. að ef starfsmaður hafi orðið fyrir, orðið vitni að, eða hafi rökstuddan grun um að tilvik tengt EKKO hafi átt sér stað, skuli hann upplýsa sinn næsta yfirmann eða mannauðsstjóra (eða annan ábyrgðaraðila málaflokksins innan ráðuneytisins). Þá skuli ráðuneytin upplýsa á sínum innri vefjum ef gerður hefur verið samstarfssamningur við fagaðila, sem er starfsfólki ráðuneytis til aðstoðar og ráðgjafar í EKKO-málum, eða felur fagaðila að taka mál í ferli þegar um samskiptavanda eða formlega tilkynningu er að ræða.
    Starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins geta því í samræmi við framangreint leitað til mannauðsstjóra ráðuneytisins eða næsta yfirmanns vegna vanvirðandi meðferðar auk þess að geta fengið aðstoð og ráðgjöf hjá fagaðila sem nánar er vikið að í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
    Þá geta starfsmenn miðlað upplýsingum til næsta yfirmanns um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda, þ.m.t. meint brot á reglugerð nr. 1009/2015, sem og til lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga, t.d. umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlits ríkisins, á grundvelli laga um vernd uppljóstrara, nr. 40/2020.

     2.      Hefur ráðuneytið gert samning um sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn sl. 5 ár? Ef svo er, hvert var tilefni slíks samnings/samninga og hver var kostnaður af honum/þeim? Svör óskast sundurliðuð eftir málefnasviðum ráðuneytisins í ljósi þeirra breytinga sem gerðar voru á ráðuneytunum í fyrra.
    Í júní 2020 gerðu heilbrigðisráðuneytið og Líf og sál sálfræðistofa með sér samstarfssamning um stuðning fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks heilbrigðisráðuneytisins. Tilefni samningsins var að tryggja sálrænan stuðning til starfsmanna ef þörf krefði. Markmiðum samningsins er jafnframt lýst svo að brugðist verði á faglegan og styðjandi hátt við áföllum og ógnum sem starfsfólk ráðuneytis kann að verða fyrir í starfi sínu, að mæta þörfum starfsfólks um fræðslu varðandi t.d. jákvæð samskipti, góðan starfsanda og forvarnir varðandi einelti á vinnustað og að tryggja ráðgjöf til stjórnenda ráðuneytisins vegna viðkvæmra starfsmannamála, kvartana eða gruns um einelti og áreitni á vinnustað. Þjónusta samkvæmt samningnum er fyrir alla starfsmenn ráðuneytisins að undangenginni beiðni mannauðsstjóra.
    Heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins vegna framangreinds samnings er 501.000 kr. frá gildistöku samningsins árið 2020.
    Málefnasvið heilbrigðisráðuneytisins breyttust ekki við breytta skipan ráðuneyta í fyrra og er því ekki þörf á sundurliðun eftir málefnasviðum.

     3.      Hver er útlagður kostnaður ráðuneytisins af kaupum á sálfélagslegum stuðningi við starfsfólk vegna vanlíðunar og/eða álags á vinnustað sl. 5 ár? Svar óskast sundurliðað eftir málefnasviðum ráðuneytisins í ljósi þeirra breytinga sem gerðar voru á ráðuneytunum í fyrra.
    Ekki er fyrir að fara neinum kostnaði ráðuneytisins af kaupum á sálfélagslegum stuðningi við starfsfólk vegna vanlíðunar og/eða álags á vinnustað sl. 5 ár öðrum en af samningi þeim sem fjallað er um í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar, þ.e. 501.000 kr.